Utanlandsferðum Íslendinga fjölgar um fjórðung 10. desember 2010 12:07
Nýjar tölur frá Ferðamálastofu eru til marks um að stöðugt fleiri Íslendingar láta undan útþrá sinni og halda erlendis. Þannig héldu mun fleiri Íslendingar utan nú í nóvember en á sama tíma í fyrra, eða um 24,6 þúsund í nýliðnum mánuði á móti 19,5 þúsund í nóvember fyrra. Þetta jafngildir aukningu upp á ríflega fjórðung. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að talningar Ferðamálastofu nái yfir allar brottfarir gesta frá landinu um Leifsstöð en stofnunin sendi frá sér fréttatilkynningu um þetta í gær. Þessi aukning á utanferðum landans er í takti þá þróun sem verið hefur síðasta árið. Þannig hefur stöðug fjölgun átt sér stað á brottförum Íslendinga erlendis m.v. sama tíma fyrir ári allt frá því í nóvember í fyrra, þó að aprílmánuði undanskildum þegar eldgosið í Eyjafjallajökli lét til sín taka og tafði verulega fyrir flugsamgöngum. Frá áramótum talið hefur brottförum Íslendinga fjölgað um 14,7% frá sama tímabili í fyrra en þó er ljóst að enn er langt í land að jafn margir Íslendingar haldi erlendis og tíðkaðist fyrir kreppu, sem eðlilegt er miðað við það mikla fjárhagslega högg sem landsmenn urðu fyrir og þróun gengis. T.a.m. eru brottfarir Íslendinga erlendis á fyrstu ellefu mánuðum ársins rúmlega 35% færri en á sama tíma á hinu mikla einkaneysluári 2007, eða um 273 þúsund á móti 423 þúsundum. Skýringu þessarar aukningar má líklegast einna helst rekja til aukins kaupmáttar Íslendinga á erlendri grundu á sama tíma vegna hækkunar á nafngengi krónunnar, enda hefur fjárhagsstaða heimila vart farið batnandi ef tekið er mið af þróun á kaupmætti ráðstöfunartekna sem og ástandinu í atvinnulífinu, að því er segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Icelandair ræður þrjá nýja stjórnendur til starfa Viðskipti innlent Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Fleiri fréttir Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Sjá meira