Sigurbergur: Verðugt verkefni gegn Val Eiríkur Stefán Ásgeirssson skrifar 30. apríl 2010 15:15 Sigurbergur Sveinsson í leik með Haukum. Mynd/Anton
Sigurbergur Sveinsson, leikmaður Hauka, á von á hörkuspennandi leikjum í úrslitarimmu liðsins gegn Val um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta. Fyrsti leikurinn í einvíginu fer fram á heimavelli Hauka í kvöld kl. 20.00 en það lið sem vinnur fyrst þrjá leiki verður Íslandsmeistari. „Við stefnum að sjálfsögðu á sigur. Við erum deildarmeistarar og fengum því heimavallarréttinn. Við ætlum ekki að tapa honum niður strax í fyrsta leik," sagði Sigurbergur í samtali við Vísi. „En þetta verður verðugt verkefni enda líta Valsarar mjög vel út þessa dagana." Haukar unnu 2-0 sigur á HK í undanúrslitum á meðan að Valur þurfti framlengdan oddaleik í sinni undanúrslitarimmu gegn Akureyri. „Það var vissulega aukaálag hjá Val að þurfa að spila oddaleikinn en það eru allir þreyttir á þessum tímapunkti og því held ég að það muni ekki skipta miklu máli. Þetta er bara spurning um hvort liðið hungrar meira í titilinn." Sigurbergur gekk í gær frá tveggja ára samningi við þýska úrvalsdeildarfélagið Dormagen og fer því frá Haukum í sumar. „Þetta ferli tók ekki langan tíma og ég er mjög ánægður með að vera búinn að ganga frá þessu. Nú get ég leyft mér að einbeita mér algerlega að úrslitakeppninni."
Olís-deild karla Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Körfubolti Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Enski boltinn Bakgarðsáskorunin: Pissustaðurinn reyndist vera beint fyrir framan myndavélina Sport Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Körfubolti Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Körfubolti Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Íslenski boltinn Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn Fleiri fréttir Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Sjá meira