Mummi í Mótorsmiðjunni er í fjölmiðlabanni 13. júlí 2010 21:11 Guðmundur Týr Þórarinsson, betur þekktur sem Mummi í Götusmiðjunni.
Guðmundur Týr Þórarinsson, betur þekktur sem Mummi í Götusmiðjunni, segir í yfirlýsingu til fjölmiðla vera í fjölmiðlabanni til 15. júlí, samkvæmt samningi við Barnaverndarstofu. Hann segir í ljósi skilyrðisins það vera furðulegt að Félags- og tryggingamálaráðuneytið skuli birta niðurstöðu um hvort barnaverndaryfirvöld fóru að málsmeðferðarreglum við rannsókn á málefnum Götusmiðjunnar. Ráðuneytið segir að barnaverndaryfirvöld brutu ekki á Götusmiðjunni. Guðmundur Týr segir að ráðherra hafi mátt vera fullljóst að tilkynningin vekti eftirtekt og athygli fjölmiðla. Hann segir að niðurstöður barnaverndaryfirvalda rangar og í fyrirfram ákveðnar. „Að endingu vil ég taka það fram að ég harma það að Félags- og tryggingamálaráðuneytið brjóti sjálft það skilyrði sem Barnaverndarstofa, undirstofnun þess, setti í tengslum við yfirstandandi samningaviðræður. Ráðuneytinu var fullljóst að Barnaverndarstofa hefði sett þetta skilyrði og að ég hefði gengist undir það. Ég get ekki ályktað öðru vísi en svo að þessi leikur ráðuneytisins sé annar en að gera mig ennþá tortryggilegri í þjóðfélagsumræðunni, eingöngu til þess að breiða yfir mistök undirmanna sinna. Er það í raun til vitnis um allt sem málið ber með sér," segir Guðmundur Týr. .Yfirlýsing frá Guðmundi Tý Þórarinssyni: Eftir að Barnaverndarstofa, Barnaverndarnefnd Reykjavíkur og Barnavernd Kópavogs gerðu rannókn á meintu broti mínu um hótanir í garð skjólstæðinga Götusmiðjunnar föstudaginn 25. Júní sl. Hófst ég handa ásamt lögfræðingum mínum að undirbúa málsókn á hendur Barnaverndarstofu. Barnaverndarstofa boðaði til samningafunda á ný og átti frumkvæði að því að samningaviðræður kæmust á á nýjan leik, þrátt fyrir alvarlegar ásakanir á hendur mér. Barnaverndarstofa setti sem skilyrði að ég fjallaði ekki efnislega um málið í fjölmiðlum á meðan þær samningaviðræður standa yfir og ráðlögðu lögfræðingar mínir mér að verða við því skilyrði. Ráðleggingar sínar byggðu þeir á trausti til forstjóra Barnaverndarstofu og Félags- og tryggingamálaráðherra auk þeirra sem fjalla um málið fyrir þeirra hönd um að vilja ljúka málinu með sátt en ekki frekari óþægindum og sársauka. Þá gerði Barnaverndarstofa einnig þá kröfu um að ég hefði ekki samband við skjólstæðinga Götusmiðjunnar eða aðstandendur þeirra á meðan samningaviðræðurnar stæðu yfir. Fjölmiðlabannið sem ég gekkst undir gildir til 15. Júlí hafi samningar ekki náðst, samkvæmt kröfu Barnaverndarstofu. Því mun ég ekki fjalla um málið efnislega fyrr en að þeim tíma loknum en eftir þann tím a munu nýjar upplýsingar í málinu vera opinberaðar sem gerir það að verkum að ráðuneytinu mun verða skylt að taka málið til umfjöllunar á nýjan leik samkvæmt 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Í ljósi þessa skilyrðis Barnaverndarstofu verður að teljast furðuleg framganga ráðuneytisins að birta niðurstöðu þessa á heimasíðu sinni á þessum tíma, enda mátti ráðherra vera það fullljóst að tilkynningin vekti eftirtekt og athygli fjölmiðla. Eftir að Götusmiðjunni var lokað hafa fjöllmargir haft samband við mig, bæði skjólstæðingar sem málið snýst um og foreldrar þeirra sem og aðrir aðstandendur. Hefur ýmislegt komið í ljós í þeim samtölum sem sýnir að niðurstöður barnaverndaryfirvalda hafi verið rangar og í raun fyrirfram ákveðnar. Hafa margir þeirra viljað fá að hitta mig á hópfundi til að fara yfir atburðina. Að kröfu Barnaverndarstofu hef ég ekki gert það. Það mun ég hins vegar gera náist ekki samningar. Barnaverndarstofa er undir Félags- og tryggingamálaráðuneytinu og ber því að fjalla um ágreining rekstraraðila meðferðarheimilis við Barnaverndarstofu samkvæmt 3. mgr. 79. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Það gerði ráðuneytiðhins vegar ekki, þrátt fyrir beiðnir mínar þar um og yfirlýsingar ráðherra um að það yrði gert. Með því var atburðarrásinni ekki afstýrt eins og ég óskaði eftir heldur var það þess valdandi að 12 ára uppbyggingarstarf Götusmiðjunnar var eyðilagt. Á því og á rökstuðningi ráðuneytisins, sést að verið er að reyna breiða yfir mistök barnaverndaryfirvalda en ekki að rétta hlut þess sem misgert er við. Að endingu vil ég taka það fram að ég harma það að Félags- og tryggingamálaráðuneytið brjóti sjálft það skilyrði sem Barnaverndarstofa, undirstofnun þess, setti í tengslum við yfirstandandi samningaviðræður. Ráðuneytinu var fullljóst að Barnaverndarstofa hefði sett þetta skilyrði og að ég hefði gengist undir það. Ég get ekki ályktað öðru vísi en svo að þessi leikur ráðuneytisins sé annar en að gera mig ennþá tortryggilegri í þjóðfélagsumræðunni, eingöngu til þess að breiða yfir mistök undirmanna sinna. Er það í raun til vitnis um allt sem málið ber með sér. Virðingarfyllst, Guðmundur Týr Þórarinsson
Tengdar fréttir Barnaverndayfirvöld brutu ekki á Götusmiðjunni Barnaverndaryfirvöld fóru að málsmeðferðarreglum barnaverndarlaga og stjórnsýslulaga við rannsókn á málefnum Götusmiðjunnar og tóku ákvarðanir sínar með hagsmuni barnanna að leiðarljósi eins og þeim er skylt. Þetta kemur fram í niðurstöðu félags- og tryggingamálaráðuneytisins sem hefur lokið athugun sinni á meðferð málsins. 13. júlí 2010 17:10 Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Innlent Fleiri fréttir Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Sjá meira
Barnaverndayfirvöld brutu ekki á Götusmiðjunni Barnaverndaryfirvöld fóru að málsmeðferðarreglum barnaverndarlaga og stjórnsýslulaga við rannsókn á málefnum Götusmiðjunnar og tóku ákvarðanir sínar með hagsmuni barnanna að leiðarljósi eins og þeim er skylt. Þetta kemur fram í niðurstöðu félags- og tryggingamálaráðuneytisins sem hefur lokið athugun sinni á meðferð málsins. 13. júlí 2010 17:10