Nám kennara og börn með ADHD Ingibjörg Karlsdóttir skrifar 23. september 2010 06:00 Í námi kennara hérlendis er takmörkuð umfjöllun um ADHD (athyglisbrest og ofvirkni). Kennarar almennt hafa því við útskrift ekki nauðsynlega þekkingu á viðeigandi kennsluaðferðum sem skila árangri í vinnu með börnum með ADHD og skyldar raskanir. Umsjónarkennarar bera þó meginábyrgð á menntun og velferð barnanna innan veggja skólans. Margir kennarar hafa sjálfir aflað sér þekkingar á ADHD og víða í skólakerfinu er unnið lofsvert starf í þágu barna með ADHD í samstarfi við foreldrana. Samt sem áður er tilviljun háð hvernig viðhorf kennari hefur til barns með ADHD og hvort kennslan er aðlöguð frávikum barnsins í þroska og þörfum þess. Ný grunnskólalög hérlendis kveða á um skóla án aðgreiningar. Þó er flestum ljóst sem starfa í grunnskólum landsins að þessi lög eru orðin tóm. Þessi lagasetning á m.a. að tryggja rétt allra barna til að stunda nám í hverfisskóla í almennum bekk. Lítið var gert til að fylgja eftir þessari lagasetningu annað en einstaklingsbundin námskrá. Engin sérstök fræðsla eða þjálfun fyrir kennara fylgdi í kjölfarið, stöðum þroskaþjálfa hefur eitthvað fjölgað, en ekki stöðugildum námsráðgjafa, iðjuþjálfa eða félagsráðgjafa í grunnskólum. Ljóst er að einn kennari stendur ekki undir því að kenna í bekk þar sem um þriðjungur barnanna og vel það eru með ólíkar greiningar (ADHD, lesblindu, einhverfu, Tourette, Asperger, þroskahömlum, líkamlega fötlun osfrv.). Skóli án aðgreiningar er því í orði en ekki á borði og algjörlega óraunhæft miðað við núverandi aðstæður kennara. Ljóst er því að staða kennara er ekki öfundsverð og efla þarf til muna handleiðslu og stuðning við kennara. Etv. gæti falist lausn í tveggja kennara kerfi hér eins og hjá frændum okkar Dönum, þá væri hægt í staðinn að spara alla stuðningsfulltrúana fyrir eitt og eitt barn. Námskeið fyrir kennara á vegum ADHD samtakannaADHD samtökin hafa nú í 5 ár staðið að símenntunarnámskeiðum fyrir kennara og annað starfsfólk grunnskóla um kennslu nemenda með ADHD. Námskeiðið var sett á laggirnar af samstarfshóp fulltrúa frá ADHD samtökunum, Félagi grunnskólakennara, Skólastjórafélagi Reykjavíkur, SAMFOK, Heimili og skóla, Kennarafélagi Reykjavíkur, sérfræðingum og SRR hjá Menntavísindasviði HÍ. Áætla má að um 10% grunnskólakennara hafi sótt námskeiðið. En betur má ef duga skal. Þar sem börn með ADHD eru flest í almennum bekk er mikið komið undir áhuga, þekkingu og viðhorfi kennarans til ADHD sem og hvernig til tekst í samstarfi heimilis og skóla, hvort barn með ADHD fær kennslu við hæfi. Fyrir þó nokkrum árum var sérdeildum í grunnskólum fækkað sem mörgum þótti á sínum tíma afleit þróun því börn með ADHD þrífast best í minni hópum. Stór rými eins og tíðkast í sumum nýrri skólabyggingum þar sem fram fer kennsla fleiri bekkja eða árganga með tilheyrandi áreiti er hins vegar skelfilegt umhverfi fyrir börn sem eiga í erfiðleikum með að útiloka ytra áreiti. Þriggja ára áætlun um bætta þjónustuSú ánægjulega þróun hefur átt sér stað undanfarin ár að stjórnvöld hafa sýnt aukinn áhuga á börnum með sérþarfir. Þegar Jóhanna Sigurðardóttir var félagsmálaráðherra var starfandi svokölluð ADHD nefnd í ráðuneytinu skipuð fulltrúum frá ráðuneytum félags-, heilbrigðis- og menntamála, ásamt fulltrúum frá BUGL, Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, Sambandi íslenskra sveitarfélaga (SÍSF) og ADHD samtökunum. Jóhanna lagði ríka áherslu á að fá skýrar tillögur frá ADHD nefndinni um úrbætur á þjónustu við börn með ADHD. Til að gera langa sögu stutta þá var gerður samstarfssamningur rúmu ári eftir bankahrunið milli ráðuneytanna þriggja og SÍSF til þriggja ára um bætta þjónustu við börn með ADHD og langveik börn. Auglýst var eftir umsóknum frá sveitarfélögum vegna verkefna í lok árs 2009 og úthlutað árið 2010. Mörg spennandi verkefni um bætta stuðnings- og nærþjónustu við langveik börn og börn með ADHD ættu að fara í gang á vegum sveitarfélaganna haustið 2010. Í fréttabréfi ADHD samtakanna 2. tbl. 2010 má sjá yfirlit yfir úthlutanir. Skorað á fjölmiðla og aðraHér með skorar undirrituð á fjölmiðla, ráðuneyti, fagaðila og alla leiðandi sérfræðinga í málefnum barna og unglinga að tjá sig opinberlega með jákvæðum hætti um þennan hóp barna sem hér um ræðir. Endalaus neikvæð umfjöllun um ADHD og lyfjanotkun hefur óhjákvæmilega áhrif á börnin og hvetur til neikvæðra viðhorfa í samfélaginu til þeirra. Við þurfum öll að taka höndum saman um að efla jákvæð viðhorf í garð barna með ADHD og skyldar raskanir og auka skilning almennings og allra viðkomandi á orsökum og afleiðingum ADHD. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Til hamingju með daginn! Árni Guðmundsson Skoðun Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun Svar við bréfi Ingós: 3.233.700.000 krónur Runólfur Ágústsson Skoðun Núll prósent skynsemi Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Að fórna hamingju fyrir verslunarfrelsi Gunnar Hersveinn Skoðun Ljúgandi málpípa Sjálfstæðisflokksins Tómas Kristjánsson Skoðun Birgir Þórarinsson er enn að Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Hvers eiga Vestfirðingar að gjalda? Ingólfur Ásgeirsson Skoðun Skömm stjórnvalda - íslensk börn með erlendan bakgrunn Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun Þegar kvíðinn tekur völdin Sóley Dröfn Davíðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Til hamingju með daginn! Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Vetur að vori - stuðningur eftir óveður Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Skömm stjórnvalda - íslensk börn með erlendan bakgrunn Birna Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Að fórna hamingju fyrir verslunarfrelsi Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Er þensla vegna íbúðauppbyggingar? Jónas Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Birgir Þórarinsson er enn að Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Viðurkennum þjóðarmorð á Armenum Eiríkur Rögnvaldsson skrifar Skoðun Þegar kvíðinn tekur völdin Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Atvinnulífið og fíkniefnasalan Ólafur Kjartansson skrifar Skoðun Drasl Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Er lýðræðinu viðbjargandi? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Forsetapróf Auður Guðna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Aukin sala áfengis ógnar grundvallarmarkmiðum lýðheilsu Aðalsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Svik VG í jafnréttismálum Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar Skoðun Spennandi tímar fyrir ungt fólk í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen,Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar Skoðun Ingólfur krítar liðugt Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Fáu spáð en vel fylgst með Ari Trausti Guðmundsson skrifar Skoðun Armæða um íslenska tungu Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Það eru lög í landinu Líneik Anna Sævarsdóttir skrifar Skoðun Svar við bréfi Ingós: 3.233.700.000 krónur Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Úr buffi í klút Gunnhildur Birna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Rétturinn til heilnæms umhverfis vs bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar Björg Sveinsdóttir skrifar Skoðun Málsvari minksins Lárus Karl Arnbjarnarson skrifar Skoðun Skuldum við 17 þúsund íbúðir á höfuðborgarsvæðinu? Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Förum vel með byggingarvörur Eyþór Bjarki Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Gerum betur Kristín B. Jónsdóttir skrifar Skoðun Á tæpustu tungu Eiríkur Örn Norðdahl skrifar Skoðun Aðför að ungmennum (Í minningu Hamarsins) Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson skrifar Skoðun „Betur borgandi ferðamenn“ Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Sjá meira
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar forréttindafólk í valdastöðu skerðir mannréttindi jaðarsettra hópa Sema Erla Serdaroglu skrifar
Skoðun Spennandi tímar fyrir ungt fólk í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen,Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar
Skoðun Rétturinn til heilnæms umhverfis vs bæjaryfirvöld Hafnarfjarðar Björg Sveinsdóttir skrifar
Fögnum á degi líffræðilegrar fjölbreytni Rannveig Magnúsdóttir,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Skúli Skúlason,Ole Sandberg,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir Skoðun