Tuttugu einkaherþotur undirbúa lendingu á Miðnesheiði 17. mars 2010 06:00
Íslensk stjórnvöld hafa dregið að taka pólitíska ákvörðun um að skrá hér á landi um tuttugu flugvélar hollensk/bandaríska fyrirtækisins E.C.A. Programs, segir Melville ten Cate, forstjóri hollenska fyrirtækisins E.C.A. Programs. Í flugflota þess eru meðal annars vopnlausar, rússneskar orrustuþotur af Sukhoi-gerð. Fyrirtækið vill koma upp viðhalds- og þjónustustöð fyrir einkarekinn en vopnlausan æfingaflugher sinn hér á landi. Áformuð fjárfesting nemur 1,2 milljörðum evra, eða um 200 milljörðum á næstu þremur árum. Áætlanir um að hefja framkvæmdir í janúar, svo að starfsemin hér á landi gæti hafist í haust, náðu ekki fram að ganga. Nú er horft til þess að leyfi liggi fyrir í lok sumars, að sögn Melvilles ten Cate. Þá verði 80 Íslendingar ráðnir til starfa og starfsemin hefjist fyrir árslok. Um 200 störf til viðbótar þarf að manna á árinu 2011. Melville ten Cate segist bjartsýnn á að leyfin verði veitt. Íslensk stjórnvöld virðist áhugasöm um E.C.A.-verkefnið en taki eftirlits- og stjórnsýsluhlutverk sitt alvarlega. Hann tekur ekki undir að pólitíkin tefji framgang málsins en segir að taka þurfi pólitíska ákvörðun um að hefja skráningarferlið. Pólitískar ákvarðanir séu alls staðar tímafrekar og tafsamar. „Við erum einkahernaðarfyrirtæki," segir ten Cate spurður um starfsemi fyrirtækisins. E.C.A. hefur rekið flutningaþjónustu fyrir heri víða um heim, meðal annars í Afganistan, Darfur og einnig á hamfarasvæðum eins og Haítí. Með fjárfestingunni á Íslandi er ætlunin að víkka starfsemina út. Auk Sukhoi-þotnanna ræður E.C.A. meðal annars yfir ómönnuðum smáflugvélum, loftskeytahermum, ratsjám og færanlegum stjórnstöðvum. Þjónusta þessa einkarekna vopnlausa flughers verður leigð herjum NATO-ríkja og bandamanna þeirra til að þjóna sem óvinaher við heræfingar. Ten Cate segir að fyrirtækið taki að sér að finna veikleika í vörnum og bæti þannig þá þjálfun sem flugmenn orrustuþotna fá á heræfingum. Fáist leyfin verður viðhalds- og þjónustustöð liðsaflans á Keflavíkurflugvelli þar sem flestir starfsmenn verða sérþjálfaðir íslenskir flugvirkjar og tölvunarfræðingar. peturg@frettabladid.is
Mest lesið Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira