Telja fasteignamarkaðinn vera að glæðast 19. ágúst 2010 12:32 Mynd/GVA
Uppfærð spá Seðlabankans um bata og horfur í efnahagslífinu er að ýmsu leyti bjartari en spá bankans í maí. Innlend eftirspurn dróst minna saman en gert var ráð fyrir, fasteignamarkaðurinn er að glæðast og atvinnuleysi að hjaðna. Þetta kemur fram í nýjasta hefti Peningamála Seðlabankans, en þar er að finna nokkuð ítarlega spá um efnahagslífið. Bankinn segir að sé mið tekið af hagvexti á fjórða ársfjórðungi 2009 og fyrsta ársfjórðungi 2010 sé efnahagsbatinn að hefjast fyrr en áætlað var. Í nýju spánni er ráð fyrir 1,9% samdrætti á þessu ári sem er um hálfu prósenti minna en gert var ráð fyrir í maí. Hagvaxtahorfur eru þó nokkru slakari fyrir næstu tvö ár. Bankinn telur meiri seiglu í innlendu efnahagslífi á fyrsta ársfjórðungi en áður hafði verið gert ráð fyrir. Innlend eftirspurn dróst saman um 2%, sem er rúmlega helmingi minni samdráttur en bankinn bjóst við. Munurinn helgast af minni samdrætti samneyslu en áður var spáð. Þó er minni vexti einkaneyslu spáð nú en í maí. Hinsvegar eru horfur á að almenn atvinnuvegafjárfesting sé að taka við sér á ný og bankinn býst við mun minni samdrætti í fjárfestingu. Bankinn telur að framleiðsluslakinn í hagkerfinu verði um 4% í ár í stað 4,5% í maí.Verðbólga og atvinnuleysi að hjaðna Fasteignaverð mun lækka minna en maíspá bankans gerði ráð fyrir, en fasteignamarkaðurinn hefur heldur glæðst það sem af er þessu ári. Uppsöfnuð velta í júlí á fasteignamarkaði er um fimmtungi meiri en í fyrra. Horfur eru á að verðbólga hjaðni hraðar en spáð var fyrir um í síðustu Peningamálum. Meðalverðbólga á árinu 2010 verður 5,7% ef spá bankans gengur eftir, en það er um hálfri prósentu minni verðbólga en gert var ráð fyrir í maí. Þá telur bankinn að atvinnuleysi nái hámarki í 9% á fyrsta fjórðungi næsta árs, en verði komið niður í um 6% árið 2012. Það er um einu prósenti minna atvinnuleysi yfir allt spátímabilið samanborið við maíspánna.
Mest lesið „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Atvinnulíf Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Sjá meira