Lánið frá AGS kostar um fimm milljónir á dag Ingimar Karl Helgason skrifar 16. mars 2009 18:30
Lánið sem við fengum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í lok nóvember, kostar um fimm milljónir króna á dag, enda þótt það sé ekkert notað. Lánið er geymt á reikningi í Bandaríkjunum, en vextirnir þar eru umtalsvert lægri en þeir sem við þurfum að greiða Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Doktor í hagfræði segir að við ættum að semja við sjóðinn upp á nýtt. Það var í lok nóvember sem þáverandi forystumenn ríkisstjórnar tilkynntu um hátt lán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, ríflega tvo milljarða bandaríkjadala. Skömmu síðar kom fyrsti hluti lánsins um 830 milljónir dala inn á reikning Seðlabankans í New York. Samkvæmt upplýsingum sem fengust frá seðlabanka Íslands í dag, eru vextirnir á láninu þó að jafnaði um tveimur prósentustigum hærri en það sem við fáum í innlánsvexti í bandaríkjunum; vextirnir séu reyndar breytilegir. Ekkert mun hafa verið notað af láninu, segir Seðlabankinn. Ef gróft er reiknað þurfum við að greiða upp undir tvo milljarða króna af þessum fyrstu 830 milljónum dala í vexti til alþjóðagjaldeyrissjóðsins, umfram það sem við fáum í vexti af því að geyma peningana á reikningi. Lilja Mósesdóttir doktor í hagfræði segir að við ættum að semja við sjóðinn upp á nýtt: „Skortur á lánstrausti neyddi okkur til þess að fara til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og biðja þar um lán og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hann er enginn góðgerðarstarfsemi heldur lánar á marksvöxtum og líka með skilyrðum sem eru mjög dýr,“ segir Lilja. „Vaxtastig fer almennt lækkandi í heiminum sem þýðir þá bæði lægri vextir á innlánsreikningum eins og þessum sem við erum með peningana okkar í New York og líka á útlánum en okkar leið kannski til þess að draga úr þessum vaxtamun er að fara til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og endursemja um vaxtakjörin á lánunum okkar.“
Mest lesið Flugvirkjar fara í verkfall Viðskipti innlent Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Viðskipti innlent Hafa samband við farþega Viðskipti innlent Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Viðskipti innlent Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Viðskipti innlent Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til Atvinnulíf Telur yfir milljarð á dag í húfi Viðskipti innlent Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Viðskipti innlent Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Viðskipti innlent Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Sjá meira