Kröfur SÍ á innlend fyrirtæki fjörutíufölduðust á áratug Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 5. ágúst 2009 16:57 Merki Seðlabanka Íslands Mynd/Pjetur
Útistandandi kröfur Seðlabanka Íslands á innlend fjármálafyrirtækji náðu metfjárhæðum í nóvember árið 2008 þegar þær námu tæpum 811 milljörðum króna. Þær höfðu þá margfaldast á skömmum tíma en í nóvember 2007 námu þær rúmum 247 milljörðum. Það merkir að á einu ári þrefölduðust lán Seðlabankans til innlendra fjármálafyrirtækja. Tíu árum fyrr, í nóvember 1998, námu sambærilegar kröfur nítján og hálfum milljarði króna. Á tíu árum meira en fjörutíufölduðust því kröfur bankans á íslenskar fjármálastofnanir. Í nóvember á síðasta ári voru slíkar kröfur einkum ótilgreindar kröfur á íslensku bankana og svokölluð daglán til þeirra. Á þeim tíma nam eigið fé bankans rúmum 153 milljörðum, eða um fimmtungi útistandandi krafna. Umfang krafnanna hafði þá tekið stökk frá því í september, þegar þær námu um 497 milljörðum. Eftir að bankarnir féllu hefur stór hluti krafna bankans færst á ríkissjóð og ríkisstofnanir, en slíkar kröfur nema í dag meira en 281 milljarði. Það kemur til vegna þess að ríkissjóður yfirtók veðlán fjármálafyrirtækjanna hjá bankanum að fjárhæð 345 milljarðar gegn 270 milljarða króna skuldabréfi. Útistandandi kröfur bankans á innlánsstofnanir, fjármálafyrirtæki og ríkissjóð nema alls í dag tæpum 740 milljörðum. Þetta kemur fram í reikningum Seðlabankans sem hagfræðisvið bankans tók saman og lét fréttastofu góðfúslega í té, en frétt sem birtist á Vísi í dag um lán Seðlabankans var unnin upp úr takmarkaðra skjali. Réttar upplýsingar um innlendar eignir seðlabankans aftur til 1995 má nálgast hér að neðan.
Mest lesið Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Neytendur Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Neytendur Gift svo góðum grillara og sér því meira um innivinnuna Atvinnulíf Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst Viðskipti innlent María nýr stjórnarformaður SVEIT Viðskipti innlent Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Sjá meira