Veglegir styrkir til sjónvarps- og kvikmyndagerðar 11. maí 2009 11:09
Norrænu menningarmálaráðherrarnir hafa gert fimm ára samkomulag við Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðinn. Samkomulagið er einn stærsti liðurinn í fjárlögum menningamálaráðherranna og mun styrkja Norðurlönd í alþjóðlegri samkeppni á sviði kvikmyndagerðar og framleiðslu sjónvarpsefnis. Alls verður um 70 milljónum danskra kr. eða 1,6 milljarði kr. varið til þessa málaflokks á hverju ári næstu fimm árin. Þar að auki mun einni milljón danskra kr. eða tæpum 23 milljónum kr. verða varið á ári í kynningar á norrænu sjónvarpsefni og kvikmyndum. Fjallað er um málið á vefsíðunni norden.org en þar segir að gengið hafi verið frá málinu á fundi sem haldinn var í Reykjavík. Þar undirrituðu norrænu menningarmálaráðherrarnir og fulltrúar norrænna kvikmyndastofnana og sjónvarpsstöðva á Norðurlöndum nýtt samkomulag við Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðinn. Samkomulagið gildir til loka árs 2014. Fjárhagsáætlun sjóðsins verður áfram sú sama. Katrín Jakobsdóttir ráðherra menningarmála er ánægð með samkomulagið. Hún leggur áherslu á að það sé mikilvægur þáttur í hnattvæðingarstefnu forsætis- og menningarmálaráðherranna. „Kvikmyndir og sjónvarp eru einstakir tjáningarmiðlar. Þeir miðla annars vegar list og menningu og hins vegar eru þeir atvinnurekstur og iðnaður. Þannig verður kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslan mikilvægur hluti í nýsköpun og skapandi iðnaði. Norðurlönd hafa hér mikilvægu hlutverki að gegna. Samkomulagið mun stuðla að því að viðhalda alþjóðlegri samkeppnishæfni þeirra á þessu sviði", segir Katrín Jakobsdóttir. Þá er framkvæmdastjóri Norræna sjóðsins einnig ánægður. „Við getum glaðst yfir því að þrátt fyrir fjármálakreppu og niðurskurð í framlögum til menningarmála þá hefur tekist að tryggja rekstur sjóðsins með fimm ára samkomulagi... Við teljum það vera viðurkenningu á starfi sjóðsins. Samstarfslíkanið, sem felur í sér að Norræna ráðherranefndin starfar með bæði norræna kvikmynda- og sjónvarpsgeiranum, er nefnilega einstakt á alþjóðavettvangi, en það stuðlar að því að viðhalda samkeppnishæfni og gæðum í framleiðslunni", segir Hanne Palmquist framkvæmdastjóri Norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðsins.
Mest lesið Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Fleiri fréttir Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Sjá meira