Samruni Árvakurs og Þórsmerkur samþykktur 4. maí 2009 10:26
Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt samruna Árvakur og Þórsmerkur ehf. sem nýlega festi kaup á Árvakri. Í úrskurði Samkeppniseftirlitsins segir að eftirlitið telur að ekki séu forsendur til að aðhafast vegna samrunans á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga. Á vefsíðu eftirlitsins segir að þann 1. apríl sl. barst Samkeppniseftirlitinu styttri tilkynning vegna yfirtöku Þórsmerkur ehf. á Árvakri hf. í samræmi við ákvæði samkeppnislaga. Fullnægði tilkynningin skilyrðum samkeppnislaga og reglna Samkeppniseftirlitsins um tilkynningu og málsmeðferð í samrunamálum en félögum sem ekki starfa á sömu mörkuðum. Starfsemi Þórsmerkur felst í rekstri eignarhaldsfélaga og er tilgangur félagsins samkvæmt upplýsingum í hlutafélagaskrá þátttaka í hvers konar atvinnurekstri, nýsköpun og þróunarstarfi, efling íslensks atvinnulífs, rekstur fasteigna, lánastarfsemi og önnur skyld starfsemi. Árvakur er útgáfufélag Morgunblaðsins og er útgáfa þess eina starfsemi félagsins. Fyrirtækin starfa því ekki á sama markaði. Í samrunaskrá kemur fram að með kaupsamningi, dags. 24. febrúar 2009, hafi Þórsmörk, fyrir milligöngu Íslandsbanka hf., skrifað sig fyrir nýju hlutafé í Árvakri með það að markmiði að eignast 100% af öllu útgefnu hlutafé félagsins með nánari skilmálum og fyrirvörum sem settir voru fram í samningum. Samkeppniseftirlitið telur að í framangreindum gerningi felist samruni í skilningi 17. gr. samkeppnislaga en samruni telst hafa átt sér stað þegar breyting verður á yfirráðum til frambúðar þegar fyrirtæki tekur yfir annað fyrirtæki. Eigendur Þórsmerkur starfa ekki á sömu mörkuðum og Árvakur. Þó skal tekið fram að eigandi Laugarholts ehf., Þorgeir Baldursson, sem er einn af hluthöfum Þórsmerkur, hefur einnig yfirráð yfir Kvos ehf., sem er eignarhaldsfélag Prentsmiðjunnar Odda hf. Þrátt fyrir að Prentsmiðjan Oddi hf. starfi á tengdum markaði dagblaðaprentunar hafa samkeppnisyfirvöld komist að því í fyrri málum sínum að dagblaðaprentun tilheyri sérstökum markaði. Þá skiptir einnig máli í þessu tilliti að ekkert hefur komið fram í málinu sem bendir til þess að Laugarholt ehf. hafi yfirráð yfir Þórsmörk enda mun félagið einungis eiga lítinn eignarhlut í Þórsmörk. Að ofangreindu virtu telur Samkeppniseftirlitið að ekki séu forsendur til að aðhafast vegna samrunans.
Mest lesið Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Fleiri fréttir Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Sjá meira