Upptaka til af fjárkúgun gegn Jóni Ásgeiri Valur Grettisson. skrifar 29. júlí 2009 13:50 Jón Ásgeir Jóhannesson.
Jón Ásgeir Jóhannesson, segir í viðtali við Vísi að nokkru áður en Morgunblaðið fékk póst um svokallað „game plan" franska skíðaskálans sem Morgunblaðið sagði frá í morgun þá hafi íslenskur lögfræðingur reynt að kúga hann til þess að borga þrjár milljónir fyrir plaggið. Jón Ásgeir fullyrðir að lögmaðurinn hafi tvisvar komið á fund með lögmanni sínum, Einari Þór Sverrissyni, og í annað skiptið hafi fundurinn verið hljóðritaður. Í fyrstu fréttum af málinu var sagt frá því að blaðamaður hefði reynt að kúga fé út úr Jóni en það var byggt á misskilningi. Jón neitaði að borga uppsett verð fyrir tölvupóstinn sem virðist hafa endað í höndum lögmannsins fyrir mistök. Fjárkúgunargögn í hendur blaðamanns „Og í kjölfarið hringir blaðamaður í mig og segir að hann sé að koma upp um þrjúhundruð milljarða svindl," segir Jón Ásgeir en pósturinn virðist hafa endað í höndum blaðamanns Morgunblaðsins þegar mútutilraunin mistókst. Pósturinn var birtur með frétt um franska skíðaskálann í Morgunblaðinu í dag. Þar kom fram nokkurskonar leikjaáætlun Jóns varðandi franska skíðaskálann í Courchevel sem er í eigu Gaums. Kaupin á skálanum eiga að hafa verið fjármögnuð með láni frá Glitni. Skuldir Baugs við bankann námu 42 milljörðum króna þegar félagið fór í þrot. Aðspurður hvað blaðamaðurinn drukkni á Morgunblaðinu heitir vill Jón ekki gefa það upp. „Þetta er virtur blaðamaður," svarar Jón Ásgeir þegar gengið er á hann. Þess má geta að í hádegisfréttum Bylgjunnar sagði Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri viðskiptafrétta Morgunblaðsins að hvorki Þorbjörn Þórðarson né Þórður Snær Júlíusson, skráðir höfundar greinarinnar, hafi haft samband við Jón drukknir. Kærði ekki fjárkúgun Jón Ásgeir segir að sér hafi verið brugðið þegar blaðamaðurinn drukkni hringdi í hann með hótanir. Jón segir að augljóslega hafi verið búið að bæta við núllum í skjalið. Það hafi ekki sýnt rétta mynd af viðskiptunum. „Það var búið að eiga við það. Núllin eru bara þvæla," segir Jón en í yfirlýsingu frá Morgunblaðinu kemur fram að ritstjórn Morgunblaðsins hafi enga ástæðu til þess að efast um upplýsingarnar og telja þær áreiðanlega heimild. Spurður hvort hann hafi kært lögmanninn fyrir fjárkúgun segir Jón Ásgeir að það hafi hann ekki gert. Spurður hversvegna ekki svarar hann: „Okkar reynsla af Ríkislögreglustjóra er þannig að við töldum ekki að tekið yrði á málinu þar." Spurður hver lögmaðurinn er vill Jón ekki gefa það upp. Segir blaðamann áreita sig Spurður um viðbrögð vegna athugasemdar ritstjórnar Morgunblaðsins, þar sem því er haldið fram að ásakanir hans séu hugarburður segir Jón Ásgeir að þetta sé í annað skiptið sem slíkt er sagt við hann af ritstjóra Morgunblaðsins. „Forveri Ólafs [Þ. Stephensen ritstjóra Morgunblaðsins] hefur áður sagt hlutina vera hugarburð minn. Það var árið 2003 þegar ég sagði að blaðið stæði á bak við uppruna Baugsmálsins. Það kom síðar í ljós að ég hafði rétt fyrir mér þegar tölvupóstarnir fundust," segir Jón Ásgeir og vitnar þar í tölvupósta Jónínu Benediktsdóttur og voru birtir í Fréttablaðinu sem síðar varð að dómsmáli oftast kallað Baugsmál. Jón segir að Ólafur, ritstjóri Morgunblaðsins, viti nákvæmlega um málefni blaðamannsins sem á að hafa hringt drukkinn í hann og haft í hótunum. „Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem blaðamaðurinn hringir í mig og hefur í hótunum," segir hann og fullyrðir að hann hafi sent fulltrúa sinn á fund með Ólafi fyrr á árinu til þess að ræða þetta áreiti sem hann vill meina að hann verði fyrir af hálfu blaðamannsins. Jón Ásgeir er eigandi 365 miðla sem fréttastofa Vísis heyrir undir.
Mest lesið Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira