Árvakur í söluferli 26. janúar 2009 17:16 Höfuðstöðvar Morgunblaðsins
Árvakur hf., útgáfufélag Morgunblaðsins, hefur falið Fyrirtækjaráðgjöf Nýja Glitnis banka hf. að annast ráðgjöf og formlegt ferli sem lýtur að öflun hlutafjár fyrir félagið. Bankinn mun á næstu dögum auglýsa eftir tilboðum í nýtt hlutafé Árvakurs, sem gefið verður út eftir að núverandi eigendur færa niður eign sína í félaginu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nýja Glitni. „Söluferlið verður opið öllum áhugasömum fjárfestum sem uppfylla skilyrði til þess að geta talist fagfjárfestar samkvæmt lögum nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti . Áhugasamir fjárfestar þurfa að fylla út trúnaðaryfirlýsingu og skila henni til Fyrirtækjaráðgjafar Nýja Glitnis fyrir kl. 16:00, föstudaginn 30. janúar nk. Gögn verða afhent á tímabilinu 28.-30. janúar með rafrænum hætti á netfang sem fjárfestar tilgreina í trúnaðaryfirlýsingu. Gert er ráð fyrir að óskuldbindandi tilboðum sé skilað til Nýja Glitnis miðvikudaginn 4. febrúar 2009. Þeim fjárfestum, sem leggja fram hæstu tilboðin, verður boðið til áframhaldandi þátttöku í söluferlinu og fá þá drög að kaupsamningi. Þá fá fjárfestar aðgang að nánari upplýsingum um starfsemi og fjárhag fyrirtækisins, en þeim ber svo að skila inn skuldbindandi tilboðum í síðasta lagi þriðjudaginn 17. febrúar. ,,Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum hafa nokkrir aðilar sýnt félaginu mikinn áhuga. Með þessu eru Árvakur og Nýi Glitnir að setja málið í ferli þar sem allir sitja við sama borð. Vonir standa til þess að öflugir aðilar, sem geta styrkt stöðu Árvakurs til framtíðar, komi að félaginu," segir Einar Örn Ólafsson, forstöðumaður Fyrirtækjaráðgjafar Nýja Glitnis.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Sjá meira