Heildarskuldir ríkissjóðs komnar í 92% af landsframleiðslu 7. september 2009 09:13
Heildarskuldir ríkissjóðs námu 1.403 milljörðum króna í lok annars ársfjórðungs eða sem nam 92% af áætlaðri landsframleiðslu ársins. Til samanburðar nam skuld ríkissjóðs 573 milljörðum króna á 2. ársfjórðungi 2008 eða sem svarar 39% af landsframleiðslu. Hrein peningaleg eign ríkissjóðs, þ.e. peningalegar eignir umfram skuldir, var neikvæð um 412 milljarða króna í lok 2. ársfjórðungs 2009 samanborið við 37 milljarða króna jákvæða eign á sama ársfjórðungi 2008. Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Á sama ársfjórðungi 2008 mældist tekjuhallinn 0% af landsframleiðslu og 0,4% af tekjum hins opinbera. Þennan mikla viðsnúning í fjármálum hins opinbera má rekja bæði til mikils tekjusamdráttar og mikillar útgjaldaaukningar. Hið opinbera var rekið með 45 milljarða króna tekjuhalla á 2. ársfjórðungi 2009 samanborið við 0,6 milljarða króna tekjuhalla á sama tíma 2008. Sem hlutfall af landsframleiðslu ársfjórðungsins mældist tekjuhallinn 12% og sem hlutfall af tekjum hins opinbera um 30%. Heildartekjur hins opinbera námu 150 milljörðum króna á 2. ársfjórðungi 2009 samanborið við 163 milljarða króna á sama tíma 2008 og lækkuðu um 7,7% milli ára. Tekjulækkunin skýrist fyrst og fremst af 6,7 milljarða króna minni tekjum af vöru- og þjónustusköttum milli ára og um 5 milljarða króna minni tekjum af tekjusköttum. Á sama tíma jukust heildarútgjöld hins opinbera um 19% milli ársfjórðunganna eða úr ríflega 163 milljörðum króna 2008 í 195 milljarða króna 2009. Sú mikla útgjaldahækkun skýrist að mestu af 10 milljarða króna aukningu í félagslegum tilfærslum til heimilanna, 10 milljarða króna hækkun í vaxtakostnaði hins opinbera og ríflega 9 milljarða króna vexti í kaupum hins opinbera á vöru og þjónustu.
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira