Kúrðu á kamrinum vegna óveðurs Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 6. ágúst 2009 13:52 Björgunarsveitarmenn að störfum. Mynd úr safni. Mynd/Vilhelm
Veður að Fjallabaki var með versta móti í nótt og hafði björgunarsveitin Suðurnes í nógu að snúast við að aðstoða fólk á hálendinu. Í Landmannalaugum fuku stór tjöld og þurfti að flytja fólk í skjól í Landmannahelli og aðra skála á svæðinu. Sumir neyddust meira að segja til að leita skjóls á kömrum í Landmannalaugum og gistu þar. Einnig þurfti að sækja tvö meidda göngumenn, annan við Ljótapoll og hinn við Hrafntinnusker, auk þess sem jepplingi var bjargað úr ánni í Landmannalaugum. Björgunarsveitir sóttu einnig erlenda ferðamenn sem stöðvað höfðu bifreið sína á Herðubreiðarhálsi þar sem þeir þorðu ekki að aka lengra vegna veðurs. Þá þurftu björgunarsveitir að bjarga erlendu ferðafólki sem sat fast í bifreið í Hólmsá fyrir stundu. Mikil úrkoma hefur verið að Fjallabaki og miklir vatnavextir í ám. Syðri Ófæra er nú sem beljandi fljót og ber nafn með rentu, samkvæmt upplýsingum frá slysavarnafélaginu Landsbjörg. Landsbjörg beinir þeim tilmælum til ferðalanga að gæta ítrustu varkárni þegar ferðast er að Fjallabaki, sérstaklega þegar fara þarf yfir óbrúaðar ár og læki. Litlir lækir eru orðnir illfærir, jafnvel þokkalega búnum jeppabifreiðum.
Mest lesið „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Erlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Innlent Heilsu Haralds konungs hrakar Erlent Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Innlent Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Innlent Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Innlent Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent Ráðherra byrjar með hlaðvarp Innlent Fleiri fréttir „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Nei eða já frá ólíkum sjónarhornum á Sprengisandi Þrír handteknir eftir árás þar sem eggvopnum og hnúajárni var beitt Mikil ungmennadrykkja á Menningarnótt og tveimur skemmtistöðum lokað Hiti á fundi borgarráðs vegna breytinga á matarþjónustu Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Sjá meira