Innlent

Tvö umferðaróhöpp á Akureyri

Helga Arnardóttir skrifar
Bíll keyrði útaf við Fagraskóg á Ólafsfjarðarvegi á milli Akureyrar og Dalvíkur undir morgun. Engin slys urðu á fólki. Þá keyrði bíll á ljósastaur við Krossanesbraut á Akureyri um sex leytið í nótt en enginn slasaðist. Í hvorugu tilvika leikur grunur á ölvun. Nóttin var annars róleg hjá lögreglunni á Akureyri og enginn gisti fangageymslur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×