Viðskipti innlent

Spáir einnig 16,2% verðbólgu í mars

Greining Íslandsbanka gerir ráð fyrir að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka um 0,3% í mars. Reynist spá deildarinnar á rökum reist mun 12 mánaða verðbólga lækka úr 17,6% í 16,2%, en verðbólga fór hæst í 18,6% í janúar síðastliðnum.

Þetta er nákvæmlega sama verðbólgustig og hagfræðideild Landsbankans hefur spáð fyrir um í mars.

Fjallað er um málið í Morgunkorni deildarinnar. Þar segir að áhrif gengishruns krónu á haustmánuðum í fyrra eru nú að fjara út, og raunar eru þegar farin að sjást merki um jákvæð áhrif gengisstyrkingar síðustu mánaða í þeim liðum VNV sem hraðast bregðast við gengisbreytingum, s.s. innfluttri ferskvöru og eldsneyti.

Á móti koma áhrif af útsölulokum sem enn gætir í liðum á borð við föt og skó, sem og húsgögn og heimilisbúnað. Póst- og símakostnaður mun að mati okkar einnig hækka talsvert í kjölfar verðskrárhækkunar annars af stóru símafyrirtækjunum. Áhrif annarra liða munu verða minni ef spá okkar gengur eftir.

Greining telur að 12 mánaða verðbólga muni ganga hratt niður það sem eftir lifir árs. Djúp efnahagslægð gengur nú yfir Ísland, atvinnuleysi stefnir í sögulegar hæðir, verðlækkun mun einkenna íbúðamarkað á komandi ársfjórðungum og hrávöruverð hefur lækkað verulega frá miðju síðasta ári á heimsmarkaði.

Auk heldur hefur krónan sótt talsvert í sig veðrið frá síðasta fjórðungi nýliðins árs og frekari styrking sé í pípunum á meðan núverandi gjaldeyrishöft og háir skammtímavextir eru við lýði.

Allt leggst þetta á eitt við að halda aftur af hækkun VNV. Spáir deildin að verðbólga verði komin niður fyrir 4% í upphafi næsta árs og að verðbólgan verði undir 2,5% markmiði Seðlabankans allan seinni hluta þess árs.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×