Seðlabankastjóri segir raunstýrivexti vera 9,5% 24. september 2009 12:57 „
Már (Guðmundsson) benti á að raunverulegir stýrivextir í dag væru innlánsvextir bankans sem nú eru 9,5% vegna þess að þeir vextir hefðu mun meiri áhrif um þessar mundir en vextir á veðlánum til fjármálastofnana." Þessi tilvitnun er úr Morgunkorni greiningar Íslandsbanka sem fjallar um síðustu stýrivaxtaákvörðun peningastefnunefndar í dag. Þar segir að síðarnefndu vextirnir eru þeir sem í daglegu tali hafa verið kallaðir stýrivextir Seðlabankans, enda marka þeir miðbik þeirra skammtímavaxta sem bankinn ákveður. „Því mætti segja að það ákvæði stöðugleikasáttmálans sem sneri að því að stýrivextir yrðu komnir niður fyrir 10% í nóvember væri uppfyllt. Seðlabankastjóri tók raunar fram að rætt hefði verið að lækka vexti á veðlánum, sem eru nú 12%, en halda innlánsvöxtum óbreyttum. Hins vegar hefði verið fallið frá því þar sem það var talið geta skapað þann misskilning að aðhald peningastefnunnar væri í raun og veru að minnka, einkum meðal útlendinga," segir í Morgunkorninu. Þá kemur fram að skilyrði til að byrja að afnema gjaldeyrishöft gætu bráðlega orðið til staðar, að mati Seðlabankans, en það er háð því að tvíhliða og fjölþjóða fjármögnun sé tryggð. Þetta bendir til þess að niðurstaða í Icesave-samningum, sem staðfesting AGS á fyrstu endurskoðun aðgerðaáætlunar sjóðsins og stjórnvalda virðist hvíla á, sé forsenda fyrir því að hafist verði handa við afnám gjaldeyrishafta. Már Guðmundsson Seðlabankastjóri segir hafa komið skýrt fram í viðræðum sínum við erlenda aðila að staðfesting endurskoðunarinnar sé algert forgangsatriði fyrir áframhaldandi endurreisn efnahagslífsins.
Mest lesið Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira