Viðskipti innlent

Síminn lækkar verð á útlandasímtölum

Frá og með 1. júlí lækkar Síminn verð á útlandasímtölum. stærsta breytingin er sú að í upphafi símtals verða gjaldfærðar 30 sekúndur fyrir tal en fyrir hverja sekúndu eftir það. Núna er verðskrá útlandasímtala með þeim hætti að í upphafi eru gjaldfærðar 60 sekúndur og fyrir hverjar 60 sekúndur eftir það.

„Auk þessa verður nokkur lækkun á mínútugjaldi. Þegar íslenskur notandi hringir í útlöndum fer gjaldið úr 0,46 í 0,43 evrur á mínútu og þegar símtal er móttekið í útlöndum fer gjaldið úr 0,22 í 0,19 evrur á mínútuna," segir í tilkynningu frá Símanum.

Þar segir einnig að á næstu árum muni verð á fjarskiptum innan Evrópusambandsins lækka í þrepum ár hvert samkvæmt reglugerð og mun gera það til ársins 2012. „Er þessi lækkun nú í samræmi við sameignlegar reglur ESB og EES um þak á verðlagningu."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×