Siggi segir góðar veðurhorfur fyrir verslunarmannahelgina 28. júlí 2009 13:00 „
Ég myndi segja að horfurnar séu bara nokkuð hagstæðar þó suðurhelmingur landins hafi óumdeilanlega vinninginn í veðrinu. Við erum að tala um hægan vind um mest allt land það er ákveðinn sigur. Úrkoma verður sennilega nokkur á norðurhluta landsins og þá sérstaklega seinnihluta helgarinnar. En syðra verður þurrt og bjart veður þó stöku síðdegisskúrir kunni að falla" segir Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfræðingur Stöðvar 2 og Vísis. Hann segir spárnar vera nokkuð samhljóma sem auki líkur á að þær rætist. „Engu að síður er þetta allt í gerjun og getur breyst eitthvað en meginlínurnar liggja að mestu fyrir" segir Sigurður. Sigurður mun verða með uppfærðar spár klukkan 13 daglega hér á VÍSI fram að verslunarmannahelgi svo menn átti sig á hvert best sé að halda, þessa stærstu ferðahelgi ársins. Hér koma veðurhorfur um verslunarmannahelgina - byggt á gögnum þriðjudaginn 28.7. Föstudagur 31-júlí 2009: Hæg norðaustlæg átt. Léttskýjað á suðurhluta landsins en hætt við síðdegisskúrum en skýjað og víða skúrir á norðurhluta landsins. Austurlandið bjart með köflum, einkum sunnan til. Hiti víðast 9-16 stig, svalast nyrst á Vestfjörðum en víða 14-16 stiga hiti til landsins Laugardagur 1-ágúst-2009: Norðaustan 5-10 m/s norðvestan til, við Breiðafjörð og úti við suðaustur- og austurströndina. Annars 3-8 m/s. Bjartviðri sunnan- og vestan til, annars skýjað með köflum og hætt við lítilsháttar vætu á Ströndum og við norður- og austurströndina. Hiti 10-16 stig, hlýjast suðvestanlands. Sunnudagur 2-ágúst-2009: Norðaustan 5-13 m/s vestast á landinu, hvassast á útnesjum annars yfirleitt 3-8 m/s. Bjart með köflum sunnan- og suðvestanlands annars skýjað og víða rigning norðan til á Vestfjörðum, norðanlands og austan. Hiti 8-16 stig, hlýjast á suðurlandi en svalast norðvestan til. Mánudagur 3-ágúst-2009: Norðaustan 5-10 á Vestfjörðum og norðvestan til annars yfirleitt hæg breytileg átt. Bjart veður suðvestan til annars skýjað og víða einhver væta. Hiti 10-16 stig, hlýjast suðvestan og vestan lands.
Mest lesið Kvíðir vetrinum framundan Innlent Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira