Vill fækka lögreglustjórum í einn Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. júlí 2009 14:52
Til stendur að lögregluumdæmi landsins verði stækkuð frá því sem nú er og verði 6-8 talsins, og starfi þau undir forystu umdæmisstjóra. Ráðgert er að þeir verði undir stjórn eins lögreglustjóra á landsvísu, sem yrði nýtt embætti. Þannig verði lögregluembættin í landinu sameinuð í eitt lögreglulið. Þetta er á meðal tillagna sem Ragna Árnadóttir dóms- og kirkjumálaráðherra kynnti fyrir lögreglustjórum og stjórn Landssambands lögreglumanna í dag. Hafinn er undirbúningur að þessu breytta skipulagi. Í fréttatilkynningu frá dóms- og kirkjumálaráðuneyti kemur fram að umdæmin muni njóta styrks hvert af öðru auk miðlægrar starfsemi á sviði fjarskipta, rannsókna, sérsveitar og starfsmannahalds, svo eitthvað sé nefnt. Skipulagsbreytingin hafi það að markmiði að tryggja þá grunnþjónustu sem lögreglu beri að veita og nýta sérhæfingu innan lögreglunnar þannig að það gagnist sem best um land allt. Stjórnunarkostnaður verður lækkaður eins mikið og unnt er til að mæta sparnaðarkröfum næstu ára. „Tillagan er afrakstur vinnu starfshóps sem ráðherra fól að fara yfir skipulag lögreglunnar hér á landi, m.a. með tilliti til núverandi aðstæðna í ríkisfjármálum og leggja áherslu á að nýta sem best þá fjármuni sem Alþingi veitir til löggæslu. Starfshópurinn ræddi við ýmis samtök lögreglumanna, lögreglustjóra, fulltrúa ákæruvalds o.fl. og gerði ráðherra grein fyrir þeim sjónarmiðum sem fram komu á þeim fundum. Ræddar voru ýmsar leiðir í skipulagsbreytingum og hefur ráðherra nú óskað eftir að hópurinn vinni að nánari útfærslu ofangreindrar tillögu og áætlun um framkvæmd hennar. Miðað er við að hópurinn skili drögum að frumvarpi í september," segir í tilkynningunni frá dómsmálaráðuneytinu.
Tengdar fréttir Lögreglustjóri segir hugmyndir um breytingar á lögreglunni vel unnar „Ég held bara að þarna sé unnið að fagmennsku og með skynsemi að leiðarljósi og þá held ég að út úr því komi alltaf eitthvað gott," segir Stefán Eiríksson lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. 30. júlí 2009 13:53 Mest lesið Flugmennirnir sviptir flugréttindum Innlent Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Innlent „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Innlent Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Innlent Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Fleiri fréttir Annað innbrotið á skömmum tíma: Leiðinlegt að stolið sé frá litla manninum á horninu Segir sama starfið nú auglýst að nýju:„Pínu sárt að horfa upp á þetta“ Flugmennirnir sviptir flugréttindum Fyrrum bæjarstjóri og bankastjóri leiða stjórn Landspítalans „Fólk bara skammast sín svo rosalega mikið“ Málaður regnbogafáni gæti reynst of sleipur Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Sjá meira
Lögreglustjóri segir hugmyndir um breytingar á lögreglunni vel unnar „Ég held bara að þarna sé unnið að fagmennsku og með skynsemi að leiðarljósi og þá held ég að út úr því komi alltaf eitthvað gott," segir Stefán Eiríksson lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. 30. júlí 2009 13:53