Tímabilið búið hjá Loga Henry Birgir Gunnarsson skrifar 12. mars 2009 19:44 Logi er hundsvekktur yfir því að þurfa að leggjast undir hnífinn. Nordic Photos/Getty Images
Logi Geirsson leikur ekki meiri handbolta á þessu tímabili. Það fékk hann staðfest fyrir um klukkutíma síðan. Öxlin á Loga er verr farinn en talið var í fyrstu og hann mun þurfa að gangast undir aðgerð vegna meiðslanna. Það tekur frá þremur upp í fimm mánuði að jafna sig af slíkum meiðslum og Logi verður því ekki kominn aftur á ferðina fyrr en í sumar. „Ég var bara að fá þessi tíðindi og er í nettu sjokki. Ég átti alls ekki von á þessu. Er eiginlega enn að melta þetta bara," sagði Logi í samtali við Vísi áðan. „Tímabilið er bara búið hjá mér. Ég fór fyrst í myndatöku fyrir þremur vikum síðan og þá sáu þeir ekki neitt. Héldu bara að þetta væri tognun eða eitthvað og hafa því verið að sprauta mig á fullu. Þvílíkt klúður og læknavesen. Þeir sáu ekki að það var komin sprunga í axlarliðinn," sagði Logi hundsvekktur. Logi kemur líklega heim á morgun og mun hitta lækna landsliðsins hér á landi. Hann mun líklega leggjast undir hnífinn hér heima enda hefur reynslan sýnt að það gefur betri raun en að fara í aðgerð erlendis. „Það er smá séns að ég nái landsleikjunum í júní. Ég vonast til þess," sagði Logi sem hefur leikið vel með landsliðinu og fjarvera hans er enn eitt áfallið fyrir íslenska landsliðið sem þegar er án fjölda lykilmanna. Logi er eðlilega svekktur að missa af lokum tímabilsins enda enn markahæsti leikmaður Lemgo þó svo hann hafi ekki alltaf fengið að spila eins mikið og hann vildi. Stórskyttan úr Hafnarfirðinum ætlar þrátt fyrir áfallið ekki að sökkva sér í þunglyndi enda jákvæður maður með eindæmum.
Mest lesið Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Þá roðnaði Beckham Fótbolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Pele og Thierry Henry fá götu í New York nefnda eftir sér Fótbolti Norðmenn ekki aðeins með lið á HM heldur einnig lögreglumenn Fótbolti Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira