Innlent

Falsaður Kjarval í umferð

Kristín María Birgisdóttir skrifar

Falsaðir tvöþúsundkróna seðlar hafa fundist í nokkrum verslunum á höfuðborgarsvæðinu.

Meðal þess sem starfsmenn þurfa að vera vakandi fyrir eru vatnsmerki seðlanna, mynd af Jóni Sigurðssyni, sem ekki er á fölsuðu seðlunum. Málarinn Jóhannes S. Kjarval prýðir þá hins vegar alla.

Lögreglan rannsakar málið og fer meðal annars yfir upptökur úr verslununum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×