Spáir því að stýrivextir verði lækkaðir niður í 14% 4. maí 2009 11:24
Greining Íslandsbanka spáir því að peningastefnunefndin lækki stýrivexti þann 7. maí um 1,5 prósentustig. Fara stýrivextir Seðlabankans við það niður í 14,0%. Nefndin hefur nú á skömmum tíma eða frá því í mars lækkað vexti úr 18,0% niður í 15,5% og síðast um 1,5 prósentustig þann 8. apríl síðastliðinn. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að talsvert hafi dregið úr verðbólgu frá síðustu vaxtaákvörðun nefndarinnar. Mælist verðbólgan nú 11,9% en var 15,2% þegar vaxtaákvörðunin í mars var tekin. Verðbólguvæntingar eru litlar og vænta stjórnendur fyrirtækja þess svo dæmi séu tekið að vísitala neysluverðs muni lækka um 2,0% litið til næstu tólf mánaða en samkvæmt verðbólguspá greiningarinnar ætti verðbólgan að hjaðna hratt á næstu mánuðum og vera hverfandi lítil eftir ár. Dregið hefur enn frekar úr eftirspurn á vinnumarkaði og atvinnulausum fjölgað. Sýnir vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar 7,1% atvinnuleysi á fyrsta ársfjórðungi samanborið við 2,3% atvinnuleysi á sama ársfjórðungi í fyrra. Þá virðist launaþrýstingur óverulegur en hækkun launavísitölu Hagstofunnar var sú minnsta á fyrsta ársfjórðungi frá því í þjóðarsáttinni í upphafi tíunda áratugar síðustu aldar. Fyrir síðustu vaxtaákvörðun peningastefnunefndarinnar í apríl hafði krónan lækkað allnokkuð á stuttum tíma eða um 9% frá vaxtaákvörðun nefndarinnar í mars. Taldi nefndin þá að veik staða krónunnar stafaði af tímabundnum þáttum svo sem tiltölulega miklum árstíðabundnum vaxtagreiðslum af skuldabréfum erlendra aðila í íslenskum krónum. Síðan hefur krónan lækkað enn frekar eða um nær 2% og spurning hver afstaða nefndarinnar er nú. Líklegt er að hún telji núverandi stýrivaxtastig ekki ráðandi fyrir þessa þróun krónunnar innan þess haftafyrirkomulags sem er á gjaldeyrismarkaði og hafi þannig ekki umtalsverðar áhyggjur af því að frekari vaxtalækkun myndi veikja krónuna frekar, segir í umfjöllun greiningarinnar.
Mest lesið Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Viðskipti innlent Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Fleiri fréttir Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Sjá meira