Pálmi Haralds og Magnús Ármann báru vitni í héraðsdómi 19. febrúar 2009 12:05
Athafnamennirnir Pálmi Haraldsson og Magnús Ármann voru kallaðir til vitnis í héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þar fóru fram vitnaleiðslur í fjársvikamáli sem ríkissaksóknari hefur höfðað á Karl Georg Sigurbjörnsson lögmann. Þeir sögðust báðir hafa litið á kaup sín á stofnfjárhlutum í Sparisjóði Hafnarfjarðar sem gott viðskiptatæri enda hafi sameining sjóðsins við aðra sparisjóði legið fyrir. Pálmi segist heldur ekki hafa vitað af því að hann væri að kaupa bréfin af A Holding. Málavextir eru að Karl Georg Sigurbjörnsson ásamt Sigurði G. Guðjónssyni höfðu milligöngu um að kaupa stofnfjárhluti í Sparisjóði Hafnarfjarðar árið 2006 fyrir A Holding, dótturfélag Baugs. A holding SA er staðsett í Lúxemborg og fóru kaupin í gegnum útibú þess í Sviss. Sigurður Þórðarson, fyrrverandi ríkisendurskoðandi, var einn af stofnfjáreigendum í sparisjóðnum og hafði milligöngu um að fjórir stofnfjáreigendur seldu bréfin sín fyrir 50 milljónir króna í gegnum Karl Georg. Dótturfélag Baugs seldi svo bréfin til Sparisjóðs vélstjóra og nokkurra fagfjárfesta, m.a. Fons og Vatnaskila fyrir 90 milljónir hvern hluta. Fimmeningarnir telja að Karl hafi hagnýtt sér ranga hugmynd Sigurðar um hámarksverð sem hægt var að fá fyrir stofnfjárbréfin og er Karl ákærður fyrir fjársvik. Í máli Pálma í morgun kom fram að hann hafi ekki átt nein viðskipti við Karl Georg heldur hafi hann aðeins verið í sambandi við Stefán Hilmarsson fjármálastjóra Baugs við kaup á hlutnum. Hann segist heldur ekki hafa vitað að hluturinn hafi verið í eigu A Holding.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira