Iðnaðarráðherra vill létta á sköttum hjá sprotafyrirtækjum 11. mars 2009 09:21
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra ræddi m.a um skattabreytingar í ávarpi sínu á aðalfundi Marel í gærdag. Össur vill létta skatta á sprotafyrirtæki. „Við þurfum að gera þetta með þeim hætti að skilgreindum nýsköpunarfyrirtækjum eins og ykkur verði gert kleift að draga frá skattstofni skilgreindan rannsóknar- og þróunarkostnað og þetta eru ekki bara orð sem að ég er að segja við ykkur," sagði Össur á fundinum. „Þetta var partur af atvinnupakka ríkisstjórnarinnar, ein af ellefu tillögum sem að ríkisstjórnin samþykkti frá mér síðastliðinn föstudag eftir að ég hafði átt samtöl meðal annars við forvígismenn í þessu fyrirtæki og núna bíður það okkar að smíða þetta í frumvarpsform." Össur sagði síðan að stefnt væri að því að frumvarp yrði lagt fyrir Alþingi strax eftir kosningar, á vorþingi. Iðnaðarráðherra ræddi einnig um krónuna og gengisumhverfið. „Það fyrsta sem við þurfum að gera er að búa til stöðugleika í gengisumhverfinu. Ég veit það vel að það þýðir ekkert fyrir mig að koma til fyrirtækja eins og Marel og Össurar og Actavis og CCP og segja ‚keppiði á heimsmarkaði í klofstígvélum krónunnar'. Það er ekki hægt. Ég lít svo á að krónan hafi lokið hlutverki sínu og að hún hafi átt verulegan þátt í þeirri ógæfu sem að íslenska þjóðin rataði í og því segi ég það að það sem að við getum gert er að segja það alveg skýrt að framtíðin felst í því að sækja um aðild að Evrópusambandinu og að taka upp evru," sagði Össur.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira