RARIK tapaði 164 milljónum á fyrri helming ársins 1. september 2009 08:37
Samkvæmt rekstrarreikningi nam tap RARIK á fyrstu sex mánuðum ársins 164 milljónum króna. Rekstrarhagnaður varð fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta upp á 1.166 milljónir króna eða 28,1% af veltu tímabilsins, samanborið við 782 milljónir eða 21,4% af veltu á sama tímabili árið áður. Hreint veltufé frá rekstri var 1.169 milljónir króna. Í tilkynningu segir að rekstrarafkoman var mun betri en á fyrri hluta ársins 2008. Rekstrartekjur hækkuðu um rúmlega 13,7% frá fyrra ári, en rekstrargjöld með afskriftum um rúmlega 6,6% og var regluleg starfsemi fyrirtækisins í samræmi við áætlanir. Afskriftir hækka milli tímabila um 102 milljónir kr. vegna endurmats eigna í lok árs 2008. Fjármagnsgjöld voru mun hærri á tímabilinu en áætlanir gerðu ráð fyrir og voru 875 milljónir króna en voru á sama tímabili árið áður 2.280 milljónir króna. Samkvæmt efnahagsreikningi 30. júní 2009 voru heildareignir RARIK 32 milljarðar kr. og heildarskuldir námu 18,3 milljörðum kr. Eigið fé var 13,8 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall 43,0%. Í tilkynningunni segir að horfur í rekstri RARIK á árinu 2009 eru traustar, en afkoman á næstu tímabilum ræðst hins vegar að verulegu leyti af stöðu gengis krónunnar og verðlagsþróun. Gengi krónunnar hefur veikst það sem af er ári en vextir erlendra lána hafa lækkað og má gera ráð fyrir að sú lækkun haldist a.m.k. út árið. Gert hefur verið ráð fyrir samdrætti í orkusölu og því hefur verið gripið til ráðstafana til að draga úr fjárfestingum í dreifikerfum og almennum rekstrarkostnaði. Ef gengi krónunnar styrkist ekki, eins og gert var ráð fyrir í áætlunum fyrir árið 2009, má búast við að rekstur félagsins verði í járnum á síðari hluta ársins og árið í heild gert upp með tapi sem skýrist fyrst og fremst af fjármagnsliðum.
Mest lesið „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira