FME frestar yfirtöku á Alfesca vegna kröfu um hluthafafund 31. júlí 2009 08:11
Fjármálaeftirlitið (FME) hefur ákveðið að fresta gildistíma á yfirtökutilboði Lur Berri á Alfesca. Ástæðan er krafa nokkurra hluthafa um að hluthafafundur verði haldinn til að ræða tilboðið. Í frétt um málið á vefsíðu FME segir að eftirlitinu hafi borist beiðni af hálfu Rekstrarfélags Nýja Kaupþings banka hf. f.h. sjóðanna Kaupthing ÍS-5, Kaupþing ÍS-15 og ICEQ verðbréfasjóðs, Gildi-Lífeyrissjóðs, Sameinaða Lífeyrissjóðsins og Stafir lífeyrissjóðs, um að framlengja gildistíma yfirtökutilboðs Lur Berri Iceland ehf., dags. 25. júní 2009, en það rann út í gærdag. Tilefni beiðnar ofangreindra aðila er að þeir hafa krafist hluthafafundar í þeim tilgangi að ræða yfirtökutilboðið. Í tengslum við yfirtökutilboð Lur Berri Iceland ehf. hafa verið unnin tvö verðmöt sem gefa ólíka mynd af tilboðinu. Annars vegar var verðmat unnið af Saga Capital sem telur tilboðsgengi Lur Berri Iceland ehf. (kr. 4,5 per hlut) til hluthafa Alfesca hf. sanngjarnt. Hins vegar var verðmat unnið af IFS Ráðgjöf ehf. sem telur verðmæti hvers útistandandi hlutar í Alfesca hf. vera kr. 8,0 per hlut. Meðal annars á að ræða þessi verðmöt á fundinum sem ofangreindir aðilar hafa krafist. Fjármálaeftirlitið telur gildar ástæður vera fyrir því að framlengja gildistíma tilboðs. Yfirtökutilboðið verður framlengt um 18 daga og beinir Fjármálaeftirlitið því til Alfesca hf. að boða til hluthafafundar við fyrsta tækifæri. Fjármálaeftirlitið áskilur sér rétt til þess að framlengja fyrrgreindan frest ef tafir verða á fundarboði til hluthafa. Yfirtökutilboð Lur Berri Iceland ehf. til hluthafa Alfesca hf. rennur því út kl. 16.00 þann 17. ágúst nk. Fjármálaeftirlitið beinir því til Alfesca hf. að birta upplýsingar um fyrirhugaðan hluthafafund opinberlega eins fljótt og auðið er.
Mest lesið Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Sjá meira