Innlent

Um 800% verðmunur á grænmeti

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Grænmetið var ódýrast í Bónus. Mynd/ Vilhelm.
Grænmetið var ódýrast í Bónus. Mynd/ Vilhelm.
Bónus var með lægsta verðið á 38 vörutegundum af þeim 55 sem skoðaðar voru þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu á miðvikudaginn. Hagkaup var oftast með hæsta verðið eða í 28 skipti.

Athygli vakti hversu mikill verðmunur er á grænmeti. Mestur verðmunur í könnuninni var 792% á ódýrasta kílóverði á jöklasalati sem var dýrast í Hagkaupum, kostaði 1.660 krónur kílóið og ódýrast í Bónus en þar kostaði það 186 krónur kílóið. Íslenskar gulrætur voru ódýrastar í Kaskó á 347 krónur kílóið en dýrastar í Nóatúni á 1.340 krónur kílóið, en mismunurinn er 286 %. Íslenskar agúrkur voru ódýrastar í Samkaup Úrval á 269 krónur kílóið en dýrastar í Hagkaupum á 797 krónur kílóið, en mismunurinn er 214 %.

Mjólkin er ódýrust í Hagkaupum. Þar kostar hún 97 krónur lítrinn sem er 10,3% ódýrara en í Fjarðarkaupum, þar kostar lítrinn 107 kr.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×