Birgitta fjarlægði bloggfærslu: Finnst athyglin viðbrigði Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 31. júlí 2009 17:49 Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Borgarahreyfingarinnar. Mynd/GVA "
Ég tók hana út því ég ætlaði aðeins að skoða þetta betur. Maður vill alls ekki vera að hvetja til þess að fólk sé að fá flensuna," segir Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Borgarahreyfingarinnar í samtali við fréttastofu. Hún skrifaði færslu á heimasíðu sína í dag þar sem hún velti fyrir sér kostum þess að smitast af svínaflensunni nú, áður en hún stökkbreytist. Birgitta segist afar áhugasöm um upphlaupið sem orðið hefur vegna flensunnar. Færsluna fjarlægði hún skömmu síðar, að eigin sögn til að skoða málið betur. Birgitta segist munu birta hana aftur að betur íhuguðu máli. „Þetta er enginn feluleikur eða neitt svoleiðis, ég vildi bara vinna betur í þessu," segir Birgitta, sem segist ekki hafa fengið skammarpóst eða reiðisímtal frá Landlækni eða neitt slíkt. Hún segist ekki vilja hvetja neinn til að fá flensuna, en finnist þetta hins vegar áhugaverð pæling. Hún hafi viljað fá með- og mótrök í málinu. „Mér finnst til dæmis mjög sniðugt hjá foreldrum að láta börn fá hlaupabólu áður en þau kunna að klóra sér," segir Birgitta. Hún segir athyglina sem bloggi hennar er sýnd mikil viðbrigði frá því sem var áður en hún varð þingkona. „Maður veigrar sér stundum við að setja inn færslur, því maður fær svo mikil viðbrögð. Hérna áður fyrr gat maður sett inn færslur og enginn pældi í því." Hún segist hins vegar ánægð með að halda úti bæði bloggi og að vera með Feisbúkksíðu, því það auðveldi henni að vera í sambandi við almenning í landinu og forði henni frá því að einangrast í þinghúsinu. VIÐBÓT 17:58 - Færslan hefur nú verið endurbirt á bloggi Birgittu, en hana má nálgast hér.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Fleiri fréttir Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Sjá meira