Peningastefnunefnd var sammála um rök gegn vaxtalækkun Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 27. ágúst 2009 16:34 Seðlabanki Íslands.
Nefndarmenn peningastefnunefndar Seðlabankans voru sammála um að veigamikil rök hnigu gegn lækkun stýrivaxta meðan gengi krónunnar væri jafnlágt og raun bar vitni á fundum nefndarinnar 11. og 12. ágúst. Þetta kemur fram í fundargerð sem birtist í dag á vef Seðlabankans. Þótt þess sæjust engin skýr merki, að mati nefndarinnar, að fyrri lækkanir stýrivaxta hefðu haft veruleg áhrif á það að farið hefði verið í kringum gjaldeyrishöftin, fé safnaðist fyrir á gjaldeyrisreikningum eða á veikingu krónunnar almennt, væri samt sem áður ekki hægt að útiloka slík áhrif. Ennfremur var nefndin þeirrar skoðunar að frekari lækkun vaxta kynni að stangast á við það markmið að hefja afnám gjaldeyrishafta fyrir 1. nóvember 2009, sérstaklega í ljósi þess hve millibankavextir eru lágir. Þá ræddu nefndarmenn einnig að lágt gengi krónunnar styddi þrátt fyrir allt við enduruppbyggingu efnahagslífsins með því að auka eftirspurn eftir innlendri vöru og þjónustu og auka samkeppnishæfni útflutningsgeirans. Nefndarmenn voru sammála um að forðast bæri að gera nokkuð sem gæti skapað efasemdir um ásetning hennar að stuðla að stöðugleika krónunnar og lítilli verðbólgu, sérstaklega í aðdraganda þess að gjaldeyrishöft verða afnumin. Því var haldið fram að þannig gæti peningastefnan best aukið tiltrú á efnahagslífið, sem er forsenda þess að gjaldeyrishöft verði afnumin. Til vaxtahækkana gæti komið af þessum sökum ef aðstæður kalla á slíkt. Með hliðsjón af umræðunni lagði seðlabankastjóri til að stýrivextir og innlánsvextir yrðu óbreyttir. Sú tillaga var samþykkt samhljóða. Lesa má fundargerð peningastefnunefndar SÍ hér.
Mest lesið Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Jóhann Ingi til Securitas Viðskipti innlent Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Sjá meira