Viðskipti innlent

Fréttaskýring: Davíð Oddsson skaðar hagsmuni þjóðarinnar

Friðrik Indriðason skrifar: skrifar

Svo virðist sem Davíð Oddsson seðlabankastjóri skilji ekki nauðsyn þess að endurvekja traust og trúnað á íslenska fjármálakerfinu meðal erlendra ríkisstjórna, bankastofnanna og fjárfesta. Ef hann skildi það myndi hann láta verki sínu lokið nú þegar í stað þess að efna til deilu um afsögn sína á versta mögulega tíma fyrir íslenskan þjóðarhag.

Ákvörðun Davíðs um að sitja áfram hefur skiljanlega vakið mikla athygli erlendra fjölmiðla og ekki hvað síst erlendra fjármálasérfræðinga. Sem stendur eru hinir erlendu sérfræðingar á einu máli um að áframhaldandi seta Davíðs sé „neyðarleg" og síst til þess sköpuð að efla traust á íslenska fjármálakerfinu.

Það er augljóst að traust og trúverðugleiki á íslenska fjármálakerfið er við frostmarkið, ef ekki beinfrosið. Og því fyrr sem þjóðinni tekst að endurbyggja þetta traust, því fyrr mun þjóðin losna úr þeirri alvarlegu kreppu sem við blasir. Hver dagur sem Davíð situr í stól seðlabankastjóra lengir í hengingaról kreppunnar.

Beat Siegenthaler sérfræðingur TD Securites í nýmörkuðum og miðlari að stórum hluta þeirra krónubréfa sem enn eru útistandandi á Íslandi segir að mjög opinber slagsmál Davíðs Oddssonar við nýja ríkisstjórn gerir augljóslega ekkert til að vekja traust fjárfesta.

Siegenthaler segir að ákvörðun Davíðs um að sitja áfram sé enn einn dapurlegur snúningur í harmleik íslenskra efnahagsmála og telur að það segi sig sjálft að gjaldeyrishöftunum verði ekki létt og að fjármálamarkaðurinn komist ekki í eðlilegt horf fyrr en þetta deilumál hefur verið til lykta leitt.

Lars Christensen forstöðumaður greiningardeildar Danske Bank segir það „neyðarlegt" að Davíð Oddsson seðlabankastjóri skuli neita að láta af starfi sínu. „Það er augljóst að ríkisstjórnin á ekki að blanda sér í það hvernig Seðlabankanum er stjórnað," segir Christensen. „En í ljósi þeirra mistaka sem gerð hafa verið ætti stjórn bankans þegar að hafa sagt af sér."

Thomas Haugaard hagfræðingur Svenska Handelsbanken í Kaupmannahöfn segir að það sé skynsamlegt að hreinsa til í kerfinu. „Seðlabankinn bar ábyrgð á umsjón með fjármálakerfinu. Þeir hefðu átt að átta sig á því hve alvarleg þróunin var," segir Haugaard.

Þarna eru þrír sérfræðingar að tjá sig um ákvörðun Davíðs og eru ummælin öll á einn veg. Ef Davíð gæti sett þjóðarhagsmuni ofar eigin hagsmunum í þessu máli ætti hann að láta strax af þessum sandkassaleik sínum við hina nýju stjórn og sjá sóma sinn í að víkja nú þegar úr stóli seðlabankastjóra.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×