Býst við frekari hópuppsögnum á næstu mánuðum 6. júlí 2009 12:16
Búast má við að á meðan rekstrarumhverfi fyrirtækja er jafn erfitt og nú er muni enn koma til hópuppsagna á næstu mánuðum. Á þetta við um fyrirtæki í byggingariðnaði sem og öðrum geirum atvinnulífsins. Þetta er mat greiningardeildar Íslandsbanka. Í Morgunkorni greiningarinnar segir að á meðan vextir eru háir og aðgengi að fjármagni af skornum skammti verður rekstrarumhverfið erfitt auk þess sem kaupmáttur almennings hefur dregist verulega saman sem hefur áhrif á verkefnastöðu fyrirtækja og dregur úr eftirspurn eftir vörum þeirra og þjónustu. Alls var 360 manns sagt upp í hópuppsögnum í júnímánuði í alls fjórum uppsögnum. Þetta er mikil fjölgun frá fyrri mánuði þegar hópuppsagnir náðu til 20 manns, en ekki hafa fleiri misst vinnuna í hópuppsögnum í einum mánuði það sem af er þessu ári. Mestu munar um uppsagnir hjá verktakafyrirtækinu Ístak sem þurfti að segja upp 270 starfsmönnum sínum í mánuðinum. Af þessum fjölda voru 70 manns sem voru á tímabundnum ráðningarsamningi og nokkrir til viðbótar voru þegar á uppsagnarfresti hjá fyrirtækinu. Fyrirsjáanlegur verkefnaskortur sem tilkominn er vegna verkloka margra stórra framkvæmda og niðurskurðar í opinberum framkvæmdum er ástæða þess að grípa þurfti til uppsagna nú en gríðarlega erfitt rekstrarumhverfi er raunveruleiki verktaka -og byggingarfyrirtækja um þessar mundir. Þetta erfiða umhverfi byggingariðnaðarins kemur glögglega í ljós þegar tölur um hópuppsagnir, gjaldþrot, og atvinnuleysi eru skoðaðar nánar. 42% þeirra sem misst hafa vinnuna í hópuppsögnum á þessu ári störfuðu í byggingariðnaði, 37% þeirra fyrirtækja sem hafa orðið gjaldþrota á árinu eru fyrirtæki í byggingariðnaði og 20% þeirra sem voru án atvinnu í lok maí mánaðar störfuðu áður við mannvirkjagerð.
Mest lesið „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Sjá meira