Exista endurbætir greinargerð eftir ábendingar FME 6. maí 2009 15:48
Í framhaldi af ábendingu frá Fjármálaeftirlitinu (FME) birtir stjórn Exista endurbætta greinargerð vegna yfirtökutilboðs í Exista. Í greinargerðinni kemur fram ítarlegri rökstuðningur á áliti stjórnar Exista á yfirtökutilboði BBR ehf. Þetta segir í tilkynningu til kauphallarinnar. Í hinni endurbættu greinargerð segir m.a. að þann 11. apríl 2009 gerði BBR ehf. hluthöfum í Exista hf. yfirtökutilboð í hluti þeirra í félaginu. Var tilboðið gert í samræmi lög um verðbréfaviðskipti. Það verð sem boðið var í yfirtökutilboðinu var 0,02 krónur fyrir hvern hlut. Eins og fram kemur í tilboðsyfirliti BBR ehf. þá er félagið einkahlutafélag í eigu Ágústs Guðmundssonar og Lýðs Guðmundssonar. Ágúst og Lýður sitja jafnframt í stjórn Exista hf. og hafa þeir því ekki komið að greinargerð þessari. BBR ehf. er með tilboðinu að uppfylla lagaskyldu sína til þess að gera slíkt tilboð, eftir að hafa eignast meira en 40% í félaginu í kjölfar hlutafjárhækkunar í desember 2008. Vegna breyttra aðstæðna hjá Exista hf. og þeirra fjárhagslegu áfalla sem félagið hefur orðið fyrir óskaði BBR ehf. eftir því við Fjármálaeftirlitið þann 6. janúar sl. að það beitti heimild laga um verðbréfaviðskipti til þess að lækka lágmarksverð í yfirtökutilboðinu. Þann 6. apríl sl. tilkynnti Fjármálaeftirlitið að það hefði fengið sérfræðinga PriceWaterhouseCoopers hf. til þess að leggja mat á verðmæti Exista hf. sem hefði komist að því að skuldir félagsins hafi verið verulega umfram eignir þess. Með hliðsjón af álitinu og verðþróun með hlutabréf félagsins í desember sl. ákvað Fjármálaeftirlitið að lágmarksverð í yfirtökutilboðinu skyldi lækkað og það vera að lágmarki 0,02 krónur á hlut. Samsvarar það hæsta verði sem BBR ehf. og tengdir aðilar greiddu fyrir hluti í Exista hf. á næstliðnum 6 mánuðum áður en yfirtökuskyldan stofnaðist. Eins og fram hefur komið var það mat sérfræðinga PriceWaterhouseCoopers hf., sem sá um verðmat á félaginu fyrir Fjármálaeftirlitið, að skuldir Exista hf. væru verulega umfram eignir þess. Í því ljósi og þar sem ekkert nýtt hefur komið fram sem breytir því mati telur stjórn Exista hf. að það verð sem boðið er í yfirtökutilboðinu sé sanngjarnt og eðlilegt. Rétt er að taka fram að endurskoðun reikninga Exista hf. stendur enn yfir og er niðurstaða endurskoðunar háð verulegri óvissu. Þá telur stjórn Exista hf. skilmála tilboðsins eðlilega, en hluthöfum er boðin greiðsla í reiðufé og liggur fyrir fullgild ábyrgð á greiðslunni í samræmi við ákvæði laga um verðbréfaviðskipti. Stjórn Exista hf. getur hins vegar ekki lagt mat á það hvort vænlegt sé fyrir einstaka hluthafa félagsins að samþykkja tilboðið eða hafna því. Í tilboðsyfirlitinu kemur jafnframt fram að á þessari stundu séu engar fyrirætlanir uppi um veigamiklar yfirtökur eða sölu á eignum og að BBR ehf. hafi ekki í hyggju meiriháttar ráðstöfun eigna félagsins eins og sakir standa. Með vísan til framangreinds telur stjórn Exista hf. ekki tilefni til að ætla að yfirtökutilboð BBR ehf. hafi neikvæð áhrif á hagsmuni Exista hf., störf stjórnenda og starfsmanna félagsins eða staðsetningu starfsstöðva þess. Stjórninni hefur ekki borist álit fulltrúa starfsmanna um tilboðið.
Mest lesið Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Neytendur „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ Viðskipti innlent Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur „Biðin er dýrust“ Viðskipti innlent Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Viðskipti innlent Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Viðskipti innlent ORA svarar fyrir fiskbúðinginn: „Stundum þarf bara pung í að gera breytingar“ Neytendur Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Viðskipti innlent Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Sjá meira