Redknapp hvílir lykilmenn gegn United um helgina 22. janúar 2009 10:10 NordicPhotos/GettyImages
Harry Redknapp var agndofa í gærkvöld þegar lærisveinar hans í Tottenham voru hársbreidd frá því að detta út úr bikarkeppninni gegn Jóhannesi Karli Guðjónssyni og félögum í Burnley. Burnley var á leið í úrslitaleikinn þegar nokkrar mínútur voru til leiksloka og liðið yfir 3-0, en Tottenham náði að galdra fram tvö mörk upp úr engu í blálokin og fór því áfram samanlagt 6-4. Liðið mætir því Manchester United í úrslitaleik deildabikarsins þann 1. mars en þar á Tottenham titil að verja eftir sigur á Chelsea í úrslitaleik á síðustu leiktíð. "Þetta var ótrúlegt. Ég hélt að við værum dauðir og grafnir í þessum leik, en ég verð að gefa strákunum hrós fyrir að ná að rífa sig upp í lokin," sagði Redknapp. Nokkrir lykilmenn Tottenham urðu fyrir smávægilegum meiðslum í leiknum í gær og hefur Redknapp ný lýst því yfir að hann ætli sér að hvíla marga lykilmenn þegar lið hans sækir Manchester United heim í enska bikarnum um helgina - liðið verði að setja allan kraft í að ná í stig í deildinni. Tottenham sækir United heim í enska bikarnum á sunnudaginn og fer svo til Stoke í erfiðan deildarleik á þriðjudagskvöldið. "Það eru mjög erfiðir leikir framundan og leikurinn gegn United er orðinn aukaatriði fyrir mig. Ef Alex (Ferguson, stjóri United) er að hlusta, ætla ég að senda blandað lið þarna upp eftir um helgina. Ég vona að stuðningsmennirnir taki það ekki nærri sér, en við vorum að spila framlengingu og erum þreyttir - auk þess sem nokkur meiðsli tóku sig upp," sagði Redknapp. "Þetta eru einu mennirnir sem ég hef úr að moða. Strákarnir sem spiluðu ekki bikarleikinn fá að spila gegn United, því ég má ekki við því að missa fleiri menn í meiðsli," sagði Redknapp.
Enski boltinn Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Fótbolti Fleiri fréttir Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Sjá meira