Viðskipti innlent

Lykilstjórnendur bera ekki ábyrgð á milljarðalánum

Lykilstjórnendur hjá Gamla Kaupþingi eru ekki ábyrgir fyrir háum lánum sem þeir fengu til hlutabréfakaupa í bankanum, samkvæmt ákvörðun stjórnar gamla bankans, sem enn stendur óbreytt þrátt fyrir að hafa verið í skoðun í fjóra mánuði.

Starfsmenn Gamla Kaupþings fengu um 50 milljarða króna að láni hjá bankanum til þess að kaupa í honum hlutabréf. Þann 25. september, örfáum dögum fyrir bankahrunið, ákvað stjórn Gamla Kaupþings að fella niður persónulegar ábyrgðir starfsmanna fyrir þessum skuldum. Rök stjórnarinnar fyrir þessari ákvörðun voru að með þessu væri verið að koma í veg fyrir að lykilstarfsmenn seldu hluti sína en það hefði haft slæm áhrif á stöðu bankans.

Ákvörðunin vakti hörð viðbrögð og áminnti til að mynda Kauphöllin Gamla Kaupþing opinberlega fyrir að hafa ekki tilkynnt ákvörðunina. Í tilkynningunni frá Kauphöllinni kom einnig fram að ekki yrði séð að þetta teldist til venjulegra viðskiptahátta. Í nóvember á síðasta ári hóf nýja stjórn bankans að skoða hvort lagalegar forsendur væru fyrir því að rifta ákvörðun gömlu stjórnarinnar og var farið yfir málið á fundi með viðskiptanefnd Alþingis. Nú tæpum fjórum mánuðum síðar hefur engin niðurstaða fengist í málið.

Í samtali við fréttastofu sagði Helga Jónsdóttir, stjórnarmaður í Nýja Kaupþingi, að málið væri enn í lögfræðilegri vinnslu. Það væri keppikefli allra að ljúka því eins fljótt og auðið er og er vonast til að niðurstaða liggi fyrir fljótlega.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×