Slæm skilaboð til fjárfesta 19. mars 2009 18:44
Forstjóri HB Granda segir að ef hætt verði við arðgreiðslu til eigenda væru það skilaboð til fjárfesta um að varasamt væri að setja áhættufé í atvinnurekstur. Forstjórinn fundar með forvígismönnum Eflingar um hvernig umbuna megi starfsfólki sem hefur samþykkt að fresta launahækkunum. Stjórn HB Granda samþykkti í síðustu viku að leggja það til við hluthafafund að greiddar verið hundrað áttatíu og sex milljónir króna í arð til eigenda. Á sama tíma hafa launahækkanir starfsmanna verið frystar samkvæmt samningi ASÍ og Samtaka atvinnulífsins. Verkalýðshreyfingin hefur krafist þess að hætt verði við arðgreiðslur eða þá menn standi við umsamdar launahækkanir. Eggert Benedikt Guðmundsson, forstjóri HB Granda, segir að tillaga stjórnar standi en það sé lokaákvörðun hluthafafundar þiðja apríl hvort arðurinn verði greiddur. „Þetta er mjög hófsöm ávöxtun á það eigið fé sem bundið er í fyrirtækinu. Og menn verða að átta sig á því að ef það er bannorð að borga út þó ekki sé nema ofurlita ávöxtun á eigið fé þá eru það náttúrulega skilaboð til allra fjárfesta um að draga sig út úr atvinnurekstri og hætta að setja áhættufé í atvinnurekstur, og þar með verður lánsfé á þessum gríðarlega háu vöxtum sem bankarnir eru að lána núna það verður eina fjármagn sem menn hafa aðgang að," segir Eggert. Eggert Benedikt fundar með fulltrúum Eflingar á morgun vegna málsins en flestir starfsmenn HB Granda tilheyra því félagi. Í fréttum Stöðvar tvö í gærkvöldi sagði Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ að stjórnendur HB Granda beittu blekkingum til að kreista fé út úr fyrirtækinu og gerði athugasemdir við verðlagningu framtíðarkvóta. Eggert Benedikt segir þetta af og frá. Farið hafi verið eftir sömu forskrift og áður og alþjóðlegum reikningsskilastöðlum.
Mest lesið Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira