Viðskipti innlent

Nýta sér netið til að ná markmiðum í fjármálum

Gríðarlegur áhugi hefur verið á þeim veflausnum sem Nýi Glitnir kynnti í byrjun janúar til þess að auðvelda heimilum að setja sér markmið í fjármálum, samkvæmt upplýsingum frá Glitni. Um 6000 þúsund manns hafa nýtt sér þessa þjónustu sem bankinn býður almenningi og viðskiptavinum sínum á netinu. Um er að ræða þrjár veftengdar lausnir ásamt svokölluðum fjármálaviðtölum sem ætlað að gera einstaklingum og heimilum auðveldara að skipuleggja fjármál sín.

„Á heimasíðu bankans geta einstaklingar lagt mat á stöðu fjármála sinna með einföldu stöðumati. Þar er með einföldum hætti hægt að slá inn áætlaðar tekjur og gjöld heimilisins í einfalda reiknivél. Þannig má sjá hver helstu útgjöld eru. Um leið er hægt að meta hvort hægt sé að draga úr útgjöldum og með hvaða hætti.

Þá geta allir nálgast heimilisbókhald á heimasíðu bankans en það gerir einstaklingum kleift að gera áætlanir, setja sér markmið og bera saman við raunveruleg útgjöld. Niðurstöður á helstu fjármálatölum eru settar fram með myndrænum hætti. Heimilisbókhald Glitnis er í excel formi og er mjög einfalt og þægilegt í notkun öllum að kostnaðarlausu.

Í netbanka Glitnis geta viðskiptavinir sett sér sparnaðarmarkmið fyrir hvern innlánsreikning og fylgst með á einfaldan hátt hvernig gengur að ná settum markmiðum. Upplýsingastika í netbankanum sýnir á myndrænan hátt hvernig gengur að ná settu markmiði.

Loks býður bankinn öllum viðskiptavinum upp á að koma í Fjármálaviðtal hjá fjármálaráðgjafa bankans þar sem fram fer heildarskoðun á fjárhagslegri stöðu. Farið er yfir eignastöðu, gjöld og tekjur. Í framhaldi af því er gerð útgjaldaáætlun, lánamat og farið yfir þau úrræði sem tiltæk eru," segir í tilkynningu frá Glitni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×