Nýta sér netið til að ná markmiðum í fjármálum 29. janúar 2009 13:55
Gríðarlegur áhugi hefur verið á þeim veflausnum sem Nýi Glitnir kynnti í byrjun janúar til þess að auðvelda heimilum að setja sér markmið í fjármálum, samkvæmt upplýsingum frá Glitni. Um 6000 þúsund manns hafa nýtt sér þessa þjónustu sem bankinn býður almenningi og viðskiptavinum sínum á netinu. Um er að ræða þrjár veftengdar lausnir ásamt svokölluðum fjármálaviðtölum sem ætlað að gera einstaklingum og heimilum auðveldara að skipuleggja fjármál sín. „Á heimasíðu bankans geta einstaklingar lagt mat á stöðu fjármála sinna með einföldu stöðumati. Þar er með einföldum hætti hægt að slá inn áætlaðar tekjur og gjöld heimilisins í einfalda reiknivél. Þannig má sjá hver helstu útgjöld eru. Um leið er hægt að meta hvort hægt sé að draga úr útgjöldum og með hvaða hætti. Þá geta allir nálgast heimilisbókhald á heimasíðu bankans en það gerir einstaklingum kleift að gera áætlanir, setja sér markmið og bera saman við raunveruleg útgjöld. Niðurstöður á helstu fjármálatölum eru settar fram með myndrænum hætti. Heimilisbókhald Glitnis er í excel formi og er mjög einfalt og þægilegt í notkun öllum að kostnaðarlausu. Í netbanka Glitnis geta viðskiptavinir sett sér sparnaðarmarkmið fyrir hvern innlánsreikning og fylgst með á einfaldan hátt hvernig gengur að ná settum markmiðum. Upplýsingastika í netbankanum sýnir á myndrænan hátt hvernig gengur að ná settu markmiði. Loks býður bankinn öllum viðskiptavinum upp á að koma í Fjármálaviðtal hjá fjármálaráðgjafa bankans þar sem fram fer heildarskoðun á fjárhagslegri stöðu. Farið er yfir eignastöðu, gjöld og tekjur. Í framhaldi af því er gerð útgjaldaáætlun, lánamat og farið yfir þau úrræði sem tiltæk eru," segir í tilkynningu frá Glitni.
Mest lesið Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur Tók fimm mánuði að byrja að tala íslensku Atvinnulíf Hreiðar Már og Kristján Ara sleppa líklega undan ábyrgð Viðskipti innlent „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ Viðskipti innlent Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Viðskipti innlent Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Viðskipti innlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Sjá meira