Styðjast við upptökur vegna rannnsóknar á gjaldeyrisbraski Ingimar Karl Helgason. skrifar 10. september 2009 18:49
Upptökur af símtölum starfsmanna eru meðal gagna sem Fjármálaeftirlitið hefur fengið frá fjármálafyrirtækjum, við rannsókn mála. Þrír menn sem eru til rannsóknar hjá eftirlitinu, vegna gjaldeyrisbrasks, stofnuðu fyrirtæki í Lúxemborg, meðan þeir voru enn að störfum hjá Askar Capital. Þrír karlmen voru leystir frá störfum hjá fjármálafyrirtækinu Askar Capital undir lok mars á þessu ári. Ástæðan var grunur um brot á lögum um gjaldeyrisviðskipti; og raunar, eftir því sem fréttastofa kemst næst; hugsanleg brot á hegningarlögum. Mál þeirra eru til rannsóknar hjá Fjármálaeftirlitinu. Gjaldeyrisbrask mannanna virðist hafa hafist um mánaðamótin nóvember/desember í fyrra. Þeir eru grunaðir um að hafa notað nafn Askar Capital í viðskiptum sínum. Þeireir undirbjuggu á sama tíma eigin rekstur. Þeir stofnuðu í byrjun desember, meðan þeir störfuðu enn hjá Askar, félagið Capital Path Partners. Samkvæmt skráningu í Lögbirtingablaði Lúxemborgar, stofnuðu þeir einnig þar sérstakt félag 16. desember, með sama heiti. Það virðist vera svonefnt skúffufyrirtæki; það er til húsa á sama stað og lögfræðistofa nokkur þarna í Lúx og tveir af þremur stjórnarmönnum eru lögmenn á stofunni. Gjaldeyrisbrask virðist vera orðinn nokkur atvinnuvegur. Aðstoðarseðlabankastjóri sagði nýlega að ærinn fjárhagslegur hvati væri fyrir suma að fara í kringum gjaldeyrishöftin. Afleiðingar þess eru þó alvarlegar því ekki skilar sér sá gjaldeyrir sem hingað á að koma. Fréttastofu er kunnugt um að meðal gagna sem Fjármálaeftirlitið skoðar vegna þessa Askar-málsins, séu upptökur eða uppskriftir af símtölum sem mennirnir áttu, úr borðsíma á skrifstofu sinni. Eftir því sem næst verður komist eru slík gögn til rannsóknar í fleiri málum sem Fjármálaeftirlitið og raunar einnig sérstakur saksóknari bankahrunsins og saksóknari efnahagsbrotadeildar hafa með höndum. Heimildarmenn fréttastofa benda meðal annars á að upptökur símtala séu í mörgum tilvikum heimildir um tilurð tiltekinna viðskipta. Þá séu símtöl í sumum tilvikum höfuðsönnunargögn í málum sem varða markaðsmisnotkun og innherjasvik.
Mest lesið Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Viðskipti innlent Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Viðskipti erlent Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Viðskipti innlent Regluleg viðskipti hjá Orkunni skila viðskiptavinum raunverulegum ávinningi Samstarf Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Viðskipti innlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Viðskipti innlent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Sjá meira