Viðskipti innlent

Greining Glitnis spáir 18,7% verðbólgu

Hagstofan birtir í fyrramálið vísitölu neysluverðs (VNV) fyrir janúar. Greining Glitnis spáir 0,7% hækkun vísitölunnar á milli mánaða, sem jafngildir 18,7% verðbólgu undanfarna 12 mánuði.

Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að eins og jafnan í janúar munu togast á gagnstæðir kraftar útsöluáhrifa sem virka til lækkunar, og verðskrárhækkana hjá hinu opinbera og víðar sem hækka neysluútgjöld almennings.

Þar við bætast áhrif af gengisfalli krónu á síðasta þriðjungi nýliðins árs sem enn eru að skila sér í hækkun á verði innfluttra neysluvara og auknum framleiðslukostnaði á hinum innlendu.

Þótt hækkunartaktur verðlags sé hraður um þessar mundir eru þó ýmsir gamalkunnir verðbólguvaldar úr sögunni. Sumir þeirra hafa reyndar snúið við blaðinu og halda nú aftur af hækkun VNV.

Þar má nefna hrávöruverð, sem lækkaði mikið á seinni hluta síðasta árs, en hefur á heildina litið breyst fremur lítið frá desemberbyrjun. Einnig hefur íbúðaverð lækkað lítillega og má gera ráð fyrir frekari lækkun á næstunni. Síðast en ekki síst hefur kreppa tekið við af þenslu í hagkerfinu, með tilheyrandi slaka á vinnumarkaði.

Í stórum dráttum má því segja að gangi sú ætlan stjórnvalda að styrkja krónuna eftir mun verðbólga ganga hratt niður eftir því sem á árið líður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×