Innlent

Útlán Kaupþings „ógeðfelld“ og „ferleg“

Ingimar Karl Helgason skrifar

Ógeðfellt og ferlegt eru orð sem stjórnandi lífeyrissjóðs notar til að lýsa útlánum Kaupþings til stærstu eigenda sinna. Formaður Landssamtaka lífeyrissjóða segir það varla geta talist eðlilegt hvað eigendur fengu mikið að láni í bankanum.

Kaupþing lánaði stærstu eigendum sínum stórfé, samkvæmt lánayfirliti bankans frá 25. september í fyrra. Sumt sem var án veða eða með Kaupþingshlutinn að veði. Nefna má Existu, félag Ólafs Ólafssonar, hlut Quatarmannsins Al-Thani, Kevin Stanford og Skúla Þorvaldsson.

Financial Times segir í fyrirsögn fréttar um þetta að stærstu eigendurnir hafi rænt Kaupþing.

En eigendurnir voru fleiri. Til að mynda áttu lífeyrissjóðir samanlagt mjög stóran hlut í bankanum; líklega yfir tíu prósent. Sex lífeyrissjóðir voru á lista yfir tuttugu stærstu hluthafa bankans í ársbyrjun 2008. Sjóðirnir reyna að ávaxta peninga sjóðfélaga, eigenda sjóðanna, sem eru venjulegt launafólk. Og þeir eru margir sem greiða til sjóðanna. Hátt í 130 þúsund manns greiða reglulega í sjóði Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, Lífeyrissjóð verslunarmanna og Gildis.

Stjórnandi eins sjóðanna, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagðist hafa pirrast við að frétta af lánunum. Sér þætti þau ferleg og í raun ógeðfelld.

Arnar Sigurmundsson, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða, segir að upplýsingarnar úr lánabók Kaupþings hljóti að koma öllum á óvart. Það verði tæpast talið eðlilegt hvað hluthafar hafi fengið mikið lánað í bankanum, líklega til að viðhalda eða auka við hlut sinn í bankanum, auk stærstu viðskiptavinanna. Þá séu þetta mjög háar fjárhæðir. Þetta hafi líklega í för með sér að eignir þrotabús Kaupþings kunni að verða rýrari þegar upp verður staðið.

Gunnar Páll Pálsson, fyrrverandi formaður VR, sat í stjórn Kaupþings, staðfesti við fréttastofu í dag að hann hefði vitað um hvernig lánunum var háttað. Hins vegar hafi lífeyrissjóðirnir almennt ekki vitað hvernig útlánamálum bankans var háttað. Hann sagðist ekki vilja tjá sig um hvort fjárfestinga sjóðfélaga lífeyrissjóðann hefði verið gætt með fullnægjandi hætti af hálfu Kaupþings.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×