Innlent

Meira en milljarður til framkvæmdasjóðs aldraðra

Kristín María Birgisdóttir skrifar

Landsmenn greiða rúman milljarð í framkvæmdasjóð aldraðra í ár en sjóðnum er ætlað að byggja upp og efla öldrunarþjónustu í landinu.

Framkvæmdasjóður aldraðra var stofnaður fyrir 28 árum. Hugmyndir um að skattleggja hvern gjaldanda í landinu til þess að kosta byggingu hjúkrunarheimila fyrir aldraða lagðist vel í stjórnvöld og þverpólitísk samstaða skapaðist um málið.

Upphaflega var töluvert minna dregið af landsmönnum en upphæðin hefur hækkað með tímanum. Sérstök samstarfsnefnd um málefni aldraðra fer með stjórn sjóðsins en áætlaðar tekjur hans af fjárlögum þetta árið eru ellefu hundruð milljónir. Landsmenn eru skattlagðir eftir að upphæð til sjóðsins hefur verið ákveðin á fjárlögum.

Meðal verkefna sem sjóðurinn fjármagnar í ár er uppbygging þjónustuíbúða við Suðurlandsbraut, hjúkrunarrými í Kópavogi og hjúkrunardeild á heilbrigðisstofnun Suðurlands en verkefni á vegum sjóðsins eru yfir tuttugu á landsvísu.

Sveitarfélög sækja styrki til sjóðsins og er úthlutað úr honum að vori. Í apríl síðastliðnum voru 952 milljónum úthlutað.

Tekjur sjóðsins koma að mestu í gegnum skattlagningu, en auk þess eru frjáls framlög og þá koma líka til vaxtatekjur af því fjármagni sem sjóðurinn á fyrir.

Í fyrra var tvö hundruð milljóna afgangur sem mun nýtast til framkvæmda á þessu ári. Það verða því í heildina þrettán hundruð milljónir sem sjóðurinn hefur úr að moða fyrir þetta ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×