Íslandsbanki enn á ný 20. febrúar 2009 13:14 Nýtt lógó Íslandsbanka.
Íslandsbanki er nýtt nafn Nýja Glitnis frá og með deginum í dag. Nafnabreytingin var formlega kynnt á fundi með fjölmiðlafólki í höfuðstöðvum Íslandsbanka við Kirkjusand í dag. Tilkynnt hafði verið um fyrirhugaða nafnabreytingu í desember á síðasta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka. Þar segir ennfremur að nafnið Íslandsbanki hafi fyrst til árið 1904 þegar Íslandsbanki var stofnaður og starfræktur fram til ársins 1930 þegar Útvegsbankinn tók yfir starfsemi Íslandsbanka. 60 árum síðar, eða árið 1990 varð Íslandsbanki til á nýjan leik þegar Útvegsbankinn, Iðnaðarbankinn, Verslunarbankinn og Alþýðubankinn sameinuðust undir nafni Íslandsbanka. Nú er Íslandsbankanafnið tekið upp í stað Glitnis eftir fall fjármálakerfisins. Meðal þess sem leiddi til þeirrar ákvörðunar að taka á ný upp nafnið Íslandsbanki voru tillögur fjölmargra viðskiptavina bankans á undanförnum mánuðum. Íslandsbanki er verðmætt og þekkt vörumerki. Nafnið er rótgróið og hefur mikla skírskotun í þá nýju stefnu bankans að horfa fyrst og fremst á sitt næsta umhverfi og þjónusta íslensk fyrirtæki og fjölskyldur. „Þetta er enn einn áfanginn á þeirri leið að byggja upp nýjan banka. Við gerðum okkur strax grein fyrir því að nafnabreyting yrði að koma til. Bæði sem lið í að byggja upp traust á nýjan leik og losna við hættuna á eilífum misskilningi vegna gamla og Nýja Glitnis. Okkur þykir líka vænt um Íslandsbankanafnið og það kom berlega í ljós að viðskiptavinir okkar eru mjög ánægðir með þetta nafn," segir Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka. „Við höfum kappkostað að þessi breyting verði eins ódýr og mögulegt er. Við endurnýtum allt það markaðsefni sem hægt er og hér er engu hent. Í mörgum tilvikum límum við einfaldlega yfir gamla nafnið og öll skilti er reynt að endurnýta. Með þessu móti tekst okkur að halda kostnaðinum við nafnabreytinguna í algjöru lágmarki." Nýtt merki Íslandsbanka hefur einnig verið tekið í notkun og byggir það á eldri merkjum Íslandsbanka og Glitnis. Rauði liturinn heldur sér en formið er bein skírskotun til gamla merkis Íslandsbanka.
Mest lesið Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Neytendur Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur Tók fimm mánuði að byrja að tala íslensku Atvinnulíf Hreiðar Már og Kristján Ara sleppa líklega undan ábyrgð Viðskipti innlent „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ Viðskipti innlent Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Viðskipti innlent Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Viðskipti innlent Fleiri fréttir Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Sjá meira