Viðskipti innlent

Íslandsbanki enn á ný

Nýtt lógó Íslandsbanka.
Nýtt lógó Íslandsbanka.

Íslandsbanki er nýtt nafn Nýja Glitnis frá og með deginum í dag. Nafnabreytingin var formlega kynnt á fundi með fjölmiðlafólki í höfuðstöðvum Íslandsbanka við Kirkjusand í dag. Tilkynnt hafði verið um fyrirhugaða nafnabreytingu í desember á síðasta ári.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka. Þar segir ennfremur að nafnið Íslandsbanki hafi fyrst til árið 1904 þegar Íslandsbanki var stofnaður og starfræktur fram til ársins 1930 þegar Útvegsbankinn tók yfir starfsemi Íslandsbanka.

60 árum síðar, eða árið 1990 varð Íslandsbanki til á nýjan leik þegar Útvegsbankinn, Iðnaðarbankinn, Verslunarbankinn og Alþýðubankinn sameinuðust undir nafni Íslandsbanka. Nú er Íslandsbankanafnið tekið upp í stað Glitnis eftir fall fjármálakerfisins.

Meðal þess sem leiddi til þeirrar ákvörðunar að taka á ný upp nafnið Íslandsbanki voru tillögur fjölmargra viðskiptavina bankans á undanförnum mánuðum. Íslandsbanki er verðmætt og þekkt vörumerki. Nafnið er rótgróið og hefur mikla skírskotun í þá nýju stefnu bankans að horfa fyrst og fremst á sitt næsta umhverfi og þjónusta íslensk fyrirtæki og fjölskyldur.

„Þetta er enn einn áfanginn á þeirri leið að byggja upp nýjan banka. Við gerðum okkur strax grein fyrir því að nafnabreyting yrði að koma til. Bæði sem lið í að byggja upp traust á nýjan leik og losna við hættuna á eilífum misskilningi vegna gamla og Nýja Glitnis. Okkur þykir líka vænt um Íslandsbankanafnið og það kom berlega í ljós að viðskiptavinir okkar eru mjög ánægðir með þetta nafn," segir Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka.

„Við höfum kappkostað að þessi breyting verði eins ódýr og mögulegt er. Við endurnýtum allt það markaðsefni sem hægt er og hér er engu hent. Í mörgum tilvikum límum við einfaldlega yfir gamla nafnið og öll skilti er reynt að endurnýta. Með þessu móti tekst okkur að halda kostnaðinum við nafnabreytinguna í algjöru lágmarki."

Nýtt merki Íslandsbanka hefur einnig verið tekið í notkun og byggir það á eldri merkjum Íslandsbanka og Glitnis. Rauði liturinn heldur sér en formið er bein skírskotun til gamla merkis Íslandsbanka.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×