Sókn í leiguhúsnæði hefur aukist um 25% milli ára 29. september 2009 10:32
Talsvert aukin sókn hefur verið í leiguhúsnæði á undanförnum mánuðum en á fyrstu átta mánuðum ársins höfðu alls 7.406 leigusamningum með íbúðarhúsnæði verið þinglýst samanborið við 5.916 á sama tímabili fyrir ári. Þetta er aukning upp á 25%. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu en framangreindar upplýsingar koma fram í gögnum sem Fasteignaskrá Íslands tekur saman og birt voru í gær. Á síðustu þremur mánuðum þessa árs var þinglýst 3.067 leigusamningum sem eru 14% fleiri samningar en á sama tímabili í fyrra og 90% aukning frá 2007 þegar samningarnir voru 1.611 á þessum tíma. Á höfuðborgarsvæðinu hefur mun fleiri leigusamningum verið þinglýst með húsnæði í ár en kaupsamningum og hefur markaðurinn fyrir kaup og sölu á íbúðarhúsnæði dregist umtalsvert saman á sama tíma og leigumarkaðurinn hefur stækkað. Aukin sókn í leiguhúsnæði skýrist án efa af efnahagsástandinu. Undanfarið hefur sala á íbúðarhúsnæði verið erfið, veltan á íbúðamarkaði lítil og verð farið lækkandi. Í slíku ástandi velja eflaust margir frekar að leigja út íbúðir sínar fremur en að láta þær standa auðar. Á móti eru kaupendur fáir, enda efnahagur heimila skaddaður af kaupmáttar- og eignarýrnun síðustu mánaða. Væntingar eru um frekari verðlækkun íbúðarhúsnæðis og vilja margir eflaust forðast að láta eigið fé sitt undir í íbúðarkaupum við slíkar aðstæður. Fleiri velja því að leigja og hefur spurn eftir slíku húsnæði þannig farið vaxandi, þrátt fyrir að stór hluti erlendra aðila sem hér var umfangsmikill á leigumarkaði fyrir hrunið sé nú fluttur erlendis.
Mest lesið Vara við afleiðingunum Viðskipti innlent Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Viðskipti innlent Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Atvinnulíf Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Viðskipti innlent Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Viðskipti innlent Þegar allt er að fara fjandans til… Atvinnulíf Leitað að fyrirmyndum í öryggismálum fyrirtækja Samstarf NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Viðskipti innlent Innkalla hrísgrjón vegna skordýraleifa Neytendur Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Kaldvík fær starfs- og rekstrarleyfi í Seyðisfirði Guðmundur Daði ráðinn forstjóri Gangna og brúa Hermann framkvæmdastjóri Fálkans Ísmars Telur Þórð hafa misskilið en sama tala varð niðurstaðan Fjórar af hverjum fimm íbúðum seljast undir auglýstu verði: „Við höfum miklar áhyggjur“ Bundu nær allan koltvísýring og brennistein á Hellisheiði Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Íslandshótelum Ráðin markaðsstjóri Prís Saka Símann um undirboð með áskriftarpakka Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Sjá meira