Lítilsháttar aukning umsvifa á húsnæðismarkaði 2. mars 2009 11:46
Umsvif á húsnæðismarkaði jukust lítillega í febrúar frá fyrri mánuði en samtals voru gerðir 175 kaupsamningar um húsnæði í febrúar samanborið við 117 samninga í janúar. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að engu að síður séu umsvifin enn afar lítil miðað við það sem áður var. Í febrúar fyrir ári síðan voru til að mynda samningarnir alls 425 talsins. Kaupsamningum hefur því fækkað um 70% á milli ára. Í febrúar fyrir ári síðan þóttu umsvifin á húsnæðismarkaði þó vera dauf enda hafði þá þegar viðsnúningur hafist á íbúðamarkaði sem kom fram í minni veltu og þá tók að hægja á þeim miklu verðhækkunum sem einkennt höfðu húsnæðismarkaðinn allt frá árinu 2004. Í febrúar árið 2007 voru gerðir 720 kaupsamningar um húsnæði og hefur kaupsamningum í febrúar nú í ár því fækkað um 85% sé miðað við sama mánuð fyrir tveimur árum síðan. Að meðaltali voru gerðir 34 samningar í viku í febrúar og nam veltan að meðaltali 900 milljónum kr. sem samsvarar því að hver samningur hafi að meðaltali verið að upphæð 30 milljónir kr. Samkvæmt mælingum Hagstofunnar lækkaði íbúðaverð á landinu öllu um 3% í febrúar frá fyrri mánuði. Húsnæðisverð hefur nú lækkað um 6,2% að nafnverði undanfarna 12 mánuði sem samsvarar því að raunverð húsnæðis hafi á sama tíma lækkað um rúmlega 20%.
Mest lesið „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Sjá meira