Innlent

Tveir karlar og tvær konur í gæsluvarðhald vegna líkamsárásar

Sólmundur Hólm Sólmundarson skrifar
Lögreglan fer fram á gæsluvarðhald yfir fjórum Litháum.
Lögreglan fer fram á gæsluvarðhald yfir fjórum Litháum.

Tveir karlar og tvær konur voru í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðuð í gæsluvarðhald til 15. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Er það í tengslum við fólskulega líkamsárás á Grettisgötu í gærdag. Þrjú þeirra hafa kært niðurstöðuna til Hæstaréttar en fólkið er á þrítugs- og fimmtugsaldri.

Fjórir karlmenn og tvær konur voru handtekin í gær upp úr hádegi vegna málsins.

Tæplega þrítugur maður slaðaðist lífshættulega í átökunum og var honum haldið sofandi í öndunarvél í nótt. Samkvæmt svæfingalækni á Landspítalanum í Fossvogi á að vekja hann í dag.

Samkvæmt heimildum brutust átökin út fyrri hluta dags í gær. Um eittleytið var lögreglan kvödd á staðinn og reyndist einn þeirra sem var á staðnum illa særður eftir átökin. Ekki er ljóst hvort áverkarnir voru eftir högg og spörk einungis eða eggvopn og barefli einnig.




Tengdar fréttir

Haldið sofandi í öndunarvél

Karlmanni á þrítugsaldri er haldið sofandi í öndunarvél á Landspítalanum í Fossvogi eftir að hafa orðið fyrir árás í húsi á Grettisgötu í Reykjavík um miðjan dag í gær. Svæfingalæknir á spítalanum segir að stefnt sé að því að vekja hann síðar í dag. Sex manns eru í haldi lögreglu grunaðir um aðild að árásinni.

Karlmaður í lífshættu eftir misþyrmingar

Tæplega þrítugur litháískur karlmaður slasaðist lífshættulega um miðjan dag í gær þegar til átaka kom í húsi við Grettisgötu í Reykjavík. Sex manns voru handteknir í kjölfarið, fjórir karlmenn og tvær konur.

Líklega farið fram á gæsluvarðhald yfir Grettisgötuhrottum

Friðrik Smári Björgvinsson hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að yfirheyrslur yfir sex Litháum sem grunaðir eru um að hafa veitt samlanda sínum lífshættulega áverka hafi farið fram í gær og í morgun og að þeim verði framhaldið í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×