Viðsnúningur ríkissjóðs orðinn 72 milljarðar til hins verra 2. júlí 2009 14:27
Samkvæmt greiðsluuppgjöri ríkissjóðs fyrir fyrstu fimm mánuði ársins er handbært fé frá rekstri neikvætt um tæpa 37 milljarða króna, sem er 72,4 milljörðum lakari útkoma heldur en sama tímabil í fyrra. Þetta kemur fram í nýju vefriti fjármálaráðuneytisins. Þar segir að innheimtar tekjur ríkissjóðs á fyrstu fimm mánuðum ársins voru rúmlega 172 milljarðar kr. sem er um 22 milljarða kr. minni tekjur en á sama tíma árið 2008. Munar þar mest um lægri skatta á vöru og þjónustu. Skatttekjur og tryggingagjöld námu rúmlega 149 milljarða kr. sem endurspeglar 16,6% samdrátt að nafnvirði eða 29,6% að raunvirði miðað við hækkun almenns verðlags. Þá jukust aðrar rekstrartekjur ríkissjóðs umtalsvert frá sama tíma árið 2008 en þar skýra auknar vaxtatekjur meginmuninn. Skattar á tekjur og hagnað námu rúmlega 71 milljarða kr. og drógust saman um 4,1% að nafnvirði samanborið við fyrstu fimm mánuði ársins 2008. Þar af nam tekjuskattur einstaklinga rúmum 36 milljörðum kr., tekjuskattur lögaðila tæplega 7 milljörðum kr. og fjármagnstekjuskattur um 28 milljörðum kr. Innheimta almennra veltuskatta nam rúmlega 57 milljörðum kr. á tímabilinu og dróst saman um 28,2% að nafnvirði á milli ára eða 39,4% að raunvirði. Virðisaukaskattur nam tæplega 39 milljörðum kr. á fyrstu fimm mánuðum ársins og dróst saman um 18 milljarða kr. frá sama tíma 2008. Hvað aðra helstu liði veltutengdra skatta varðar er samdrátturinn milli ára mestur í vörugjöldum af ökutækjum eða yfir 90%. Greidd gjöld nema 209,1 milljarði kr. og hækka um 50,0 milljarða kr. frá fyrra ári, eða um 31,5%. Milli ára hækka útgjöld mest til almennrar opinberrar þjónustu um 18,5 milljarða, þar sem vaxtagreiðslur ríkissjóðs skýra 15,9 milljarða kr. Þá hækka útgjöld til almannatrygginga og velferðarmála um 15,4 milljarða kr. sem skýrist að mestu með 9,6 milljarða kr. hækkun útgjalda Atvinnuleysistryggingasjóðs á milli ára, 2,2 milljarðar vegna útgjalda lífeyristrygginga sem hækka um 12,4% og barnabótum sem hækka um 963 milljónir króna milli ára. Útgjöld til menntamála aukast um 1,8 milljarða króna þar sem útgjöld til Háskóla Íslands aukast um 788 milljónir króna og útgjöld til Lánasjóðs íslenskra námsmanna aukast um tæpar 500 milljónir kr. milli ára. Breytingar í öðrum málaflokkum eru svo minni en þær sem áður hafa verið taldar.
Mest lesið Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Viðskipti innlent Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Viðskipti innlent Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Viðskipti innlent Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Viðskipti innlent Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Viðskipti innlent Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Viðskipti innlent Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Methagnaður norska olíusjóðsins Viðskipti erlent 50+ konur eru framtíðin fyrir gjörbreyttan vinnumarkað Atvinnulíf Fleiri fréttir Kalla inn pylsur vegna prentvillu Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Sjá meira