Skattahækkanir kosta hverja fjölskyldu 130 þúsund í ár 21. júní 2009 08:42
Skattahækkanir á þessu ári verða um 130 þúsund krónur að meðaltali á hverja fjölskyldu, en 270 þúsund á næsta ári en þó ber að geta þess að um 20% af skatttekjunum eru vegna aukinna skatta á háar tekjur sem hefur því ekki áhrif á ráðstöfunartekjur þeirra sem eru með lægri laun. Þetta kemur fram í Hagsjá hagfræðideildar Landsbankans sem birt hefur ýmsa útreikninga á áhrifum skattaðgerða ríkisstjórnarinnar sem kynntar voru í vikunni. Þá er gert ráð fyrir að breytingar á virðisaukaskatti hækki vísitölu neysluverðs um 0,25%. Í Hagsjánni kemur fram að í upprunalegri áætlun íslenskra stjórnvalda sem lög var til grundvallar samkomulaginu við AGS er gert ráð fyrir að frumtekjur ríkissjóðs verði um 38 milljörðum kr. hærri á næsta ári en á þessu ári og aftur 51 milljarða kr. hærri á árinu 2011. Skattahækkanirnar sem boðaðar hafa verið og hert eftirlit eiga að skila um 22 milljörðum kr. á heilu ári, þannig að annaðhvort verður að herða enn skattlagningu til að brúa bilið eða ná jöfnuði með auknum niðurskurði og vexti skattstofnanna. Framhald þeirra aðhaldsaðgerða sem boðaðar eru í frumvarpinu ætti að skila um 35 milljörðum kr. niðurskurði á útgjöldum á næsta ári, sem er nokkurn vegin í takt við þau markmið sem sett voru í áætlun AGS og ríkisins fyrir árið 2010. Í þeirri áætlun er stefnt að afgangi af rekstri árið 2011 og jöfnuði að viðbættum fjármagnskostnaði árið 2012, en þá ættu tekjur ríkissjóðs að undanskildum vaxtatekjum að vera 38% hærri en á þessu ári og útgjöld að undanskildum vaxtagjöldum 12% lægri en á þessu ári.
Mest lesið „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Sjá meira