Bankasýsla ríkisins stofnuð Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 21. júní 2009 14:04 Steingrímur vill stofna Bankasýslu ríkisins til að fara með málefni fjármálastofnana í ríkiseigu. Mynd/Valli
Bankasýsla ríkisins verður að veruleika samþykki alþingi nýtt frumvarp Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra. Bankasýslan mun hafa það hlutverk að fara með eignarhluti ríkisins í fjármálafyrirtækjum, leggja þeim til fé fyrir hönd ríkisins á grundvelli heimildar í fjárlögum og stuðla að uppbyggingu innlends fjármálamarkaðar. Jafnframt er á verkefnaskrá sýslunnar að standa að vali í bankaráð og stjórnir fjármálafyrirtækja og undirbúa sölu eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Með yfirstjórn Bankasýslunnar fara þrír stjórnarmenn sem fjármálaráðherra skipar til fimm ára, en að þeim tíma loknum stendur til að leggja niður sýsluna. Forstjóri sýslunnar er ráðinn af stjórn hennar. Bankasýslan er stofnuð til þess að auka trúverðugleika eigendaákvarðana ríkisins í málefnum bankanna svo daglegur rekstur þeirra sé hafinn yfir vafa um pólitísk afskipti. Þannig megi ná fram eðlilegum viðskiptaháttum og virkri samkeppni á fjármálamarkaði þrátt fyrir að umrædd fjármálafyrirtæki séu í sömu eigu, að því er kemur fram í athugasemdum við frumvarpið. Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur gagnrýnt þessi áform og segir þau ganga út á að halda bönkunum í ríkiseigu lengur en æskilegt er. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra gefur lítið fyrir þessar áhyggjur: „Er þetta ekki tiltölulega staðlað og hefðbundið svar frá íhaldsmanni?" segir Steingrímur í samtali við fréttastofu. „Það er ekki markmið ríkisins að eiga og reka banka til lengri tíma."
Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira